Fulltrúar Vegagerðarinnar gerðu grein fyrir stöðu dýpkunar í Landeyjahöfn og kom fram að vel hefði gengið að dýpka um helgina. Jafnframt kom fram í máli þeirra að frá og með þriðjudeginum 21. apríl ætti að vera hægt að dýpka daglega á flóðum og þegar dýpi í hafnarmynni hefur náð fjórum metrum verður einnig unnt að dýpka allan sólahringinn. Stefnt er að mælingu á dýpi á morgun fimmtudag ef vel gengur að dýpka.
Á fundinum kom fram að bæjarstjóri hefði sent erindi fyrir hönd bæjarráðs til innviðaráðherra og vegamálastjóra vegna stöðu samgöngumála og kröfu um viðbrögð.
Í erindinu er meðal annars kallað eftir viðbótaraðila til dýpkunar í Landeyjahöfn, fjölgun flugferða til og frá Vestmannaeyjum og skýrri viðbragðsáætlun komi til þess að Herjólfur IV geti ekki sinnt áætlunarsiglingum. Þar sem engin ósk hefur borist af hálfu Innviðaráðuneytisins hefur Vegagerðin ekki bætt við flugi.
Bæjarstjóri áréttaði að skipið Baldur dygði ekki sem varaskip fyrir Vestmannaeyjar, hvorki hvað varðar flutningsgetu né aðstöðu fyrir farþega þegar siglt er til Þorlákshafnar. Af hálfu Vegagerðarinnar kom fram að Herjólfur III væri til skoðunar sem varaskip og verið að gera hann kláran til að geta brugðist við stöðunni ef leysa þarf Herjólf IV af.
Loks benti bæjarráð á mikilvægi þess að Vegagerðin upplýsi íbúa reglulega og skýrt um stöðu samgöngumála á meðan ástandið er með þessum hætti.
