Dagurinn er tileinkaður minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni, auk þess að minna á ábyrgð hvers og eins og þakka viðbragðsaðilum fyrir þeirra mikilvæga starf.
Í ár verður sérstök áhersla lögð á unga ökumenn, en þeir eru hlutfallslega í meiri hættu en aðrir í umferðinni. Reynsluleysi og áhættuhegðun geta haft alvarlegar afleiðingar og því er mikilvægt að efla fræðslu og forvarnir meðal ungra vegfarenda.
Minningarstundir í Vestmannaeyjum
Í Vestmannaeyjum verður dagsins minnst með messu í Landakirkju kl. 13:00 og kertastund við kirkjugarðinn kl. 20:00.
Viðbragðsaðilar verða einnig sýnilegir þennan dag til að vekja athygli á mikilvægi umferðaröryggis og því ómetanlega starfi sem þeir sinna.
Dagurinn er okkur öllum áminning um að sýna aðgát, tillitssemi og ábyrgð í umferðinni.
Hvert mannslíf skiptir máli.
Samgöngustofa - Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
