Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 25. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að breyttu Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna lagningu almannavarna lagnar NSL4, skv. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir nýrri almannavarna vatnslögn, NSL4, sem lögð verður til hliðar núverandi leiðslu, NSL3, um 12,5 km leið milli lands og eyja. Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja afhendingu vatns til Vestmannaeyja, en vegna skemmda á vatnsleiðslu NSL3 til Vestmannaeyja í nóvember 2023 er vatnsflutningur til Vestmannaeyja ótryggur.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi gerir ráð fyrir að almannavarna vatnslögn NSL4 komi í land austarlega í Skansfjöru og þaðan leidd um fjöruna að inntaki núverandi lagnar. Í aðalskipulagi verður fyrir nokkra landnotkunarreiti bætt við ákvæði um að háspennustrengir og stofnlagnir vatnsveitu geti legið um svæðið enda sé frágangi þannig háttað að sem minnst rask hljótist af.
Tilkynning með fyrirspurn varðandi umhverfismat framkvæmda og áætlana var send HMS (þá Skipulagsstofnun) þann 14. október 2025, skv., samkvæmt 19. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, sbr. lið 10.17 í 1. viðauka laganna. Þann 20. janúar barst niðurstaða HMS um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Nánari umfjöllun um málið má sjá í Skipulagsgátt HMS mál nr. 1432/2025.
Skipulagsgögn má finna á útprentuðu formi í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt, mál nr. 1686/2025.
Veittur er frestur til og með 29. maí 2026 til að skila athugasemdum vegna málsins.
