06.09.2019
Alheims hreinsunardagurinn 21 september
Alheims hreinsunardagurinn (e. world cleanup day) er sameiginlegt átak þar sem íbúar heimsins hreinsa rusl um allan heim og eru sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir auka einstaklinga hvattir til þess að taka þátt í að hreinsa sitt nánasta umhverfi.
Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að 21. september verði svæðið við Torfmýri hreinsað. Mæting er við golfskála GV klukkan 11.00. Að lokinni hreinsun verður grillað við þjónustuhúsið í Herjólfsdal.
Umhverfis- og framkvæmdasvið
Vestmannaeyjabæjar