Fara í efni
13.08.2026 Fréttir

Ákveðið að ljúka útlagningu NSL-4 til að lágmarka frekara tjón

Deildu

Í kjölfar atviksins sem varð aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst við útlagningu á almannavarnarlögninni NSL-4 telur bærinn að um altjón á lögninni sé að ræða. Þrátt fyrir það hefur verið tekin ákvörðun um að halda áfram og klára útlagningu hennar. Er það gert í þeirri von að hægt verði að nýta lögnina og að einhverju marki.

Í samskiptum við verktakann Subsea 7 sem er útlangingaaðilinn hefur komið fram að þetta sé skynsamlegasta skrefið á þessum tímapunkti til þess að lágmarka frekari kostnað.

Útlagningin munu þó ekki hefjast að nýju fyrr en uppfært áhættumat og önnur nauðsynleg skjöl hafa verið samþykkt. Þetta er gert til að tryggja fyllsta öryggi við framhaldið.

Vestmannaeyjabær leggur ríka áherslu á að þessi ákvörðun um áframhaldandi útlagningu felur á engan hátt í sér viðurkenningu á ábyrgð á atvikinu eða tjóninu. Öll réttindi sveitarfélagsins eru óskert og tryggingamál vegna málsins munu halda áfram í sínum eðlilega farvegi.