Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnti stefnuna en hún leiddi vinnu við mótun hennar, ásamt stýrihópi sem bæjarráð skipaði í janúar 2025. Í hópnum voru safnstjórarnir Gígja Óskarsdóttir, Kári Bjarnason og Kristin Jóhannsdóttir.
Með hópnum starfaði einnig Drífa Gunnarsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Gunnar Júlíusson sá um hönnun og uppsetningu stefnunnar.
Við gerð stefnunnar var lögð áhersla á samráð við hagsmunaaðila í samfélaginu. Samtals var rætt við um 150 íbúa á aldrinum 5–80 ára í 18 hagsmunahópum. Auk þess var settur upp hugmyndakassi í Safnahúsi, netfangið menningarstefna@vestmannaeyjar.is virkjað og nafnlaus könnun send út þar sem íbúar gátu látið í ljós álit sitt á menningarmálum og komið á framfæri hugmyndum og ábendingum.
Á kynningunni var farið yfir tilgang stefnunnar, framtíðarsýn í menningarmálum og fjóra meginþætti hennar, ásamt aðgerðum fyrir hvern þátt.