Afsláttur af fasteignagjöldum einstaklinga verður endurreiknaður núna í júní miðað við skattframtal síðasta árs. Endurreiknað er fyrir allt árið og getur það haft áhrif til hækkunar eða lækkunar fasteignagjalda sem dreifist jafnt á gjalddaga frá júní til nóvember.
Er þetta í annað skiptið sem þessi háttur er hafður á, en ákvörðun um þetta var tekin af bæjarstjórn við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
