Hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af leikskólastarfi.
- Góð skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni:
Uppeldi og menntun:
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
- Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Stjórnun og skipulagning:
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Foreldrasamvinna:
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til leikskólastjóra á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is merkt „Leikskólakennari Kirkjugerði“.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Frekari upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280.
Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til 22. sept 2021.
