Um er að ræða afleysingu vegna fæðingarorlofs í 85-100% stöðu sem skiptist í 30% stjórnun í samráði við leikskólastjóra og 55-70% önnur verkefni, s.s. afleysing á deild, sérkennsla eða deildarstjórnun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi við leikskólastjóra.
Hæfniskröfur:
|
Helstu verkefni:
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Heimilt er að aðstoðarleikskólastjóri starfi ekki sem deildarstjóri.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins og ef hann starfar jafnframt sem deildarstjóri fer hann þá eftir starfslýsingu hans.
- Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2021.
Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til leikskólastjóra á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is merkt „Aðstoðarleikskólastjóri Kirkjugerðis“.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Frekari upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280.
Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um stöðuna.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
