Fara í efni
21.08.2018 Fréttir

Afleysingarstaða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Kirkjugerði

Laus er til umsóknar afleysingarstaða aðstoðarleikskólastjóra leikskólans Kirkjugerði í Vestmannaeyjum.
Deildu
Stjórnunarhlutfallið er 30% á móti 70% starfi á deild. Um er að ræða amk þriggja mánaða afleysingarstöðu. Upplýsingar gefur Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280 Helstu verkefni og ábyrgð: ?? Vinnur með skólastjóra að stjórnun leikskólans og við framkvæmd og skipulagningu skólastarfsins. ?? Tekur þátt í faglegri samvinnu leik- og grunnskóla þar sem markmið framtíðarsýnar Vestmannaeyjabæjar eru höfð að leiðarljósi. Hæfniskröfur: ?? Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla í leikskóla. ?? Menntun og reynsla í stjórnun æskileg. ?? Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. ?? Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. ?? Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst n.k. Umsóknir berist til leikskólastjóra, á netfangið bjarney@vestmannaeyjar.is ??Aðstoðarleikskólastjóri Kirkjugerði??. Laun eru greidd skv. kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.