Auglýst er eftir aðstoðarleikskólastjóra við leikskóladeild
Grunnskóla Vestmannaeyja. Stjórnunarhlutfall
50% á móti 50% starfi á deild. Upplýsingar gefur
Sigurlás Þorleifsson skólastjóri GRV (sigurlas@grv.is)
eða Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og
fræðslusviðs (jonp@vestmannaeyjar.is)
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Vinnur með skólastjóra að stjórnun leikskólans
/leikskóladeildarinnar og við framkvæmd og
skipulagningu skólastarfsins.
• Tekur þátt í faglegri samvinnu leik- og
grunnskóla þar sem markmið framtíðarsýnar
Vestmannaeyjabæjar eru höfð að leiðarljósi.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla
í leikskóla.
• Menntun og reynsla í stjórnun æskileg.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl n.k.
Umsóknir berist til Þjónustuvers Ráðhúss
v/Bárustíg, 900 Vestmannaeyjar merkt
„Aðstoðarleikskólastjóri Víkin“.
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.