Fara í efni
02.08.2016 Fréttir

Aðstoðarleikskólastjóra við Víkina

Auglýst er eftir aðstoðarleikskólastjóra við leikskóladeild Grunnskóla Vestmannaeyja.  Stjórnunarhlutfall 50% á móti 50% starfi á deild.  Upplýsingar gefur Sigurlás Þorleifsson skólastjóri GRV eða Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs (jonp@vestmannaeyjar.is)

Deildu
Helstu verkefni og ábyrgð:

·       Vinnur með skólastjóra að stjórnun leikskólans/leikskóladeildarinnar og við framkvæmd og skipulagningu skólastarfsins.

·       Tekur þátt í  faglegri samvinnu leik- og grunnskóla þar sem markmið framtíðarsýnar Vestmannaeyjabæjar eru höfð að leiðarljósi.

 

Hæfniskröfur:

·       Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla í leikskóla.

·       Menntun og reynsla í  stjórnun æskileg.

·       Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

·       Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.

·       Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.

 

Umsóknarfrestur er til  15. ágúst n.k. Umsóknir berist til Þjónustuvers Ráðhúss, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjar merkt „Aðstoðarleikskólastjóri Víkin“.

 

Laun eru skv. kjarasamningi  Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.