Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
Viðkomandi starfar í eldhúsi við matarskömmtun og þrif og fær jafnaði nákvæma leiðsögn frá næsta yfirmanni.
Helstu verkefni eru:
- Að undirbúa síðdegishressingar alla virka daga skólaársins
- Að undirbúa morgunhressingar og matarskömmtun í hádegi þegar við á þessa 30 daga sem opið er allan daginn á frístund
- Þrif á eldhúsi og í matsal
- Vinna með börnum
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey eða Drífanda
Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember. Umsækjandi þarf að hafa náð 18. ára aldri.
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem hafa ekki rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.
Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 488 2240 eða í tölvupósti anton@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. október næstkomandi.
