Vægari úrræði reynd fyrst
Áður en gripið var til frekari aðgerða voru vægari úrræði reynd. Samkvæmt ráðleggingum frá Náttúrufræðistofnun voru settar upp fuglafælur í formi svífandi fálka á umræddum svæðum. Þessar aðgerðir skiluðu því miður ekki tilætluðum árangri þar sem dúfurnar fluttu sig aðeins stuttan spöl og sneru fljótt aftur.
Undanþága frá ráðuneyti
Í kjölfarið var leitað til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sumarið 2025 eftir heimild til beinna aðgerða til að fækka bjargdúfum. Málið var til ítarlegrar meðferðar hjá stjórnvöldum í um það bil ár og var leitað álits fagstofnana. Að lokum veitti ráðuneytið undanþágu frá lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum bjargdúfna í sveitarfélaginu.
Strangar leiðbeiningar og öryggi í fyrirrúmi
Náttúruverndarstofnun veitti Vestmannaeyjabæ strangar leiðbeiningar um framkvæmd aðgerðanna sem kappkostað er að fylgja í einu og öllu. Meðal þess sem farið er eftir:
Ekki er hleypt af skoti nær fuglabjörgum en 200 metra á landi til að koma í veg fyrir truflun á mikilvægum varpstöðvum sjófugla.
Beðið var með aðgerðir þar til ungar voru farnir úr björgum og hreiðrum.
Samráð var haft við lögreglu um framkvæmd veiða innan þéttbýlis.
Tryggt var að þeir sem sinntu veiðunum hefðu gilt veiðikort og skotvopnaleyfi.
Hræjum er safnað saman og gengið frá þeim í samræmi við lög um dýrasjúkdóma.
Mistök við frágang
Nýverið bárust ábendingar, og myndir frá íbúa, sem sýndu fram á að dúfuhræjum og notuðum skothylkjum hafði verið hent í almenna ruslatunnu. Um var að ræða mistök við frágang, en farið hefur verið yfir verkferla með þeim sem sinna aðgerðunum til að tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur og að reglum um meðhöndlun dýrahræja sé ávallt fylgt.
Vestmannaeyjabær hefur þrisvar gripið til aðgerða á grundvelli þessarar heimildar, ávallt innan þess ramma sem settur var og með tilkynningu til lögreglu. Sveitarfélagið leggur áherslu á að litið er á aðgerðirnar sem einskiptisaðgerð til að bregðast við ákveðnu vandamáli og tjóni, en ekki sem varanlegt leyfi til veiða til margra ára.
