Flogið verður fjóra daga vikunnar, á mánudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Alls verða fimm ferðir fram og til baka á viku, þar af tvær ferðir á fimmtudögum.
Flugáætlunin gildir frá 1. desember 2026 til 28. febrúar 2027. Nánari upplýsingar um flugtíma og bókanir eru á vef Norlandair.
Vert er að minna á að íbúar Vestmannaeyja eiga rétt á afsláttarkjörum í gegnum Loftbrú. Nánari upplýsingar um Loftbrú eru á Ísland.is – Loftbrú.