Leiksýning með þátttöku fatlaðs fólks var frumsýnd í Vestmannaeyjum þann 13. maí síðastliðinn sem lokaverkefni styrksins „Viltu hafa áhrif“. Verkefnið var unnið á vegum Visku, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja og stóð yfir frá 1. apríl til 13. maí 2026.
Markmið verkefnisins var að skapa vettvang fyrir fatlað fólk til að efla skapandi tjáningu, byggja upp sjálfstraust og miðla eigin reynslu og hæfileikum til samfélagsins. Í verkefninu komu saman þátttakendur, listafólk og fagfólk úr samfélaginu í sameiginlegri leiksýningu sem byggði á þjóðhátíðarstemningu í Herjólfsdal.
Leikstjórinn Árni Grétar Jóhannsson samdi verkið og stýrði uppsetningunni. ÍBV veitti leyfi til notkunar þjóðhátíðarlaga í sýningunni og tónlistarmennirnir Birgir Nielsen og Jarl Sigurgeirsson sáu um tónlistina. Þá kom Jóhanna Lilja Eiríksdóttir að leikmyndahönnun ásamt listafólki í Hvíta húsinu.
Undirbúningur hófst í febrúar með vikulegum tónlistar- og myndlistartímum áður en leiklistaræfingar hófust af fullum krafti í apríl. Leikfélag Vestmannaeyja tók virkan þátt í verkefninu og var sýningin vel sótt, en fullt var út úr dyrum á frumsýningu.
Samkvæmt lokaskýrslu verkefnisins nam heildarkostnaður við uppsetninguna rúmlega 1,7 milljónum króna, þar af stærstur hluti vegna launakostnaðar leikstjóra, tónlistar og myndlistar.
Aðstandendur verkefnisins segja sýninguna hafa tekist einstaklega vel og nú sé til skoðunar að halda aðra sýningu vegna mikils áhuga almennings.




