Eins og undanfarin ár heimsóttu okkur 8 ára grunnskólabörn úr Hamarsskólanum til að fræðast um eldvarnir í heimahúsum. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast af kertaskreytingum og hvernig skuli bregðast við þeim hættum. Farið yfir þau öryggistæki á heimilum sem eru nauðsynleg eins og reykskynjarar, eldvarnateppi, slökkvitæki og einnig þarf fjölskyldan að ræða um flóttaleiðir á sínu heimili. Farið einnig yfir þann búnað sem allir þurfa að vera með um áramótin þegar verið er með blys og flugelda. Reykkafari hjá slökkviliðinu sýndi börnunum búnað sinn og einnig prófuðu þau hjálma slökkviliðsmanna. Smá gjafir fengu börnin frá Tryggingarmiðstöðinni, Lionsklúbbnum og slökkviliðinu. Og í lokin var börnunum skutlað aftur í skólann með slökkviliðsbíl.
Vestmannaeyjar 12.des 07. Ragnar þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri.