Í Fréttum 8. júlí 1976 stóð: „Næstkomandi laugardag verður hin nýja sundlaug Eyjabúa vígð.“ Viku síðar birtist svo eftirfarandi lýsing: „Tíundi júlí var einnig stór dagur í sögu okkar. Þá var Sundhöllin tekin formlega í notkun.“ Hinn stórviðburður mánaðarins var koma Herjólfs II, aðeins sex dögum fyrr.
Daginn eftir vígsluna skrifaði Árni Johnsen í sunnudagsblað Morgunblaðsins og lýsti hátíðisdeginum svo: „Hin nýja sundlaug Vestmanneyinga í Brimhólalaut var vígð í dag [10. júlí] að viðstöddu miklu fjölmenni, um 2.000 manns, eða nær helmingi bæjarbúa. Sundhöllin er fyrri áfangi Íþróttamiðstöðvarinnar í Brimhólalaut, en síðari áfanginn, Íþróttasalurinn, verður tekinn í notkun 12. september nk.“
Við getum enn í dag verið stolt af sundlauginni okkar. Hún reis á tímum endurreisnar og bjartsýni þegar Vestmannaeyjar voru að rísa úr öskunni eftir gosið. Frá fyrsta degi hefur hún verið mikilvægur hluti af daglegu lífi Eyjamanna; staður þar sem kynslóðir barna hafa lært að synda, fjölskyldur átt saman góðar stundir og íbúar eflt heilsu sína og vellíðan.
Sundhöllin er líka samkomustaður sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu okkar í hálfa öld. Þar mætast kynslóðir, þar skapast minningar og þar hefur samfélagið notið samveru í gegnum gleði og hversdagslíf.
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja verður einnig 50 ára á árinu eða þann 12. september. Verður þá haldið upp á þessi tvö afmæli og sögu sundlaugar og Íþróttamiðstöðvar gerð góð skil á Safnahelginni í nóvember.
Íris Róbersdóttir, bæjarstjóri

