Í tilefni hans langar okkur að staldra við og minna okkur á hvað leikurinn er mikilvægur í starfi okkar hér í leikskólanum. Í frjálsum leik er barnið við stjórnvölinn. Í takt við hugsmíðjahyggjuna lítum við á börn sem virka þátttakendur sem skapa eigin skilning og þekkingu á heiminum í gegnum reynslu, tilraunir og samstarf við önnur börn. Í gegnum leikinn lærist félagsfærni og samskipti, sjálfsstjórn og þolinmæði, íhugun, lausnamiðun og ekki síst málörvun. Í stuttu máli, frjálsi leikurinn gefur barninu rými til að smíða eigin þekkingu, efla sjálfsmynd sína og læra listina við að eiga í innihaldsríkum samskiptum við aðra.
11.06.2026
11.júní - Alþjóðlegur dagur leiks
Pistill frá Kirkjugerði






