Annars vegar er hægt að kjósa á skrifstofu Umhverfis -og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5, frá 09-12 báða dagana og hins vegar er um að ræða rafræna kosningu í íbúagátt hér á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar. (þegar komið er inn í íbúagátt skal velja Innskrá í Íslykill -sjá skjámynd)
Til þess að geta kosið rafrænt, þarf að sækja um svokallaðan Íslykil, sem er nokkurs konar auðkennislykill á Internetinu. Til þess að sækja um Íslykil þarf að fara á vefsíðuna http://www.island.is/islykill Þar má sjá tengil „Panta Íslykil“ sem tekur notandann á síðu þar sem hægt er að panta Íslykil. Þar er slegin inn kennitala notandans og merkt við hvernig viðkomandi vill fá Íslykilinn afhentan. Í netbanka/heimabanka eða í bréfpósti á lögheimili. Athugið að það getur tekið allt að viku að fá lykilinn í bréfpósti og því er nauðsynlegt fyrir þá sem ekki hafa aðgang að heimabanka að sækja um lykilinn sem allra fyrst, hafi þeir á annað borð áhuga á að taka þátt í íbúakosningunni með rafrænum hætti. Eftir að Íslykillinn hefur borist þarf að skrá sig inn á „Mínar síður“ hjá island.is Við það er handhafa Íslykilsins boðið að velja sér nýjan auðkennisstreng sem betur er að muna. Allar nánari upplýsingar um Íslykil Þjóðskrár Íslands má finna á vefsíðunni http://www.island.is/islykill. Einnig er hægt að notast við rafræna auðkenningu í gegnum GSM síma.
Þetta er í annað sinn sem leitað hefur verið beint til bæjarbúa eftir afstöðu til mála af þessu tagi, en í fyrra sinn var um að ræða byggingu hótels við Hástein. Er það von Vestmannaeyjabæjar að sem flestir nýti sér rétt sinn og taki þátt í atkvæðagreiðslunni.