Fara í efni
09.07.2008 Fréttir

Auglýsing frá fjölskyldu- og fræðslusviði vegna frístundavers:

Frístundaver opnar um leið og grunnskólinn byrjar og verður opið eftir hádegið alla virka daga skólaársins frá kl. 12.30 til kl. 17.00. Fötluð börn og börn í 1. bekk hafa forgang.

Deildu

Umsóknareyðublöð (inntökubeiðnir) fást í þjónustuveri Ráðhússins og á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Umsóknum skal fylgja staðfesting á greiðslufyrirkomulagi og skilist í þjónustuver Ráðhússins.

Laus störf í frístundaveri veturinn 2008-2009

Umsóknarfrestur er til 25. júlí.

Laus eru til umsóknar 40-50 % störf í frístundaveri. Ráðningartíminn er 20. ágúst 2008 - 5. júní 2009. Starfstími að mestu eftir hádegi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum STAVEY og Vestmannaeyjabæjar. Umsóknum skal skila í þjónustuver Ráðhússins. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.

Allar nánari upplýsingar gefur Ásta Halldórsdóttir umsjónarmaður Frístundaversins í síma 481-3213

F.h. fjölskyldu- og fræðslusviðs
Erna Jóhannesdóttir
fræðslufulltrúi