Skipulagssvæðið nær til 6,4 ha svæðis og gerir ráð fyrir svæði fyrir lageringu- og vinnslu jarðvegsefna auk lóðar og byggingarreits fyrir steypustöð. Gert er ráð fyrir byggingarreitum fyrir steypustöð, starfsmannaaðstöðu og yfirbyggingu fyrir ökutæki og vélar.
Settir eru fram skilmálar varðandi umhverfisfrágang, svo sem manir og lýsingu.
Vinnslutillagan er í samræmi við Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 þar sem landnotkunarreitur svæðisins er skilgreindur sem iðnaðarsvæði. Yfirborð svæðisins er þegar raskað en það liggur í nálægð við jarðmynjar og útivistarsvæði.
Gert er ráð fyrir að yfirborð svæðisins verði lækkað um 5 metra og manir reistar umhverfis svæðið til að draga úr ásýnd.
Skipulagsgögn eru aðgengileg á Skipulagsgátt HMS, mál nr. 1294/2026 og í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja. Opið hús verður á skrifstofu skipulagsfulltrúa dagana 17-19 nóvember milli 10 og 12 vegna málsins.
Umsagnir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt eða skriflega í afgreiðslu Ráðhúss. Veittur er frestur til og með 8. desember 2026 til að skila athugasemdum vegna málsins.

