Fara í efni

Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja

448. fundur
9. nóvember 2026 kl. 16:15 - 17:12
í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður
Auðunn Haraldsson aðalmaður
Ármann Halldór Jensson aðalmaður
Jessý Friðbjarnarsdóttir aðalmaður
Linda Rós Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Kynning á fjárhagsáætlun ársins 2027 - skipulags- og umhverfismál
Málsnúmer 202611027
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnir helstu atriði fjárhagsáætlunar ársins 2027 er varða skipulags- og umhverfismál.
Ráðið þakkar kynninguna.
2.
Skipulagsgátt HMS - kynning
Málsnúmer 202611028
Skipulagsfulltrúi kynnir Skipulagsgátt HMS (https://skipulagsgatt.is/). Skipulagsgáttin var fyrst innleidd árið 2023 og er nú orðin opinber vettvangur þar sem haldið er utan um auglýsingar, umsagnir og lokagögn skipulagsmála. Í skipulagsgáttinni eru kynnt fjölbreytt mál, allt frá umhverfismati framkvæmda, aðal- og deiliskipulagsbreytingar, framkvæmdaleyfi og grenndarkynningar.
Hægt er að skoða gögn vegna mála og fylgjast með framgangi þeirra. Notendur geta skráð sig inn gegnum rafræn skilríki og óskað eftir að fá tilkynningar vegna breytinga í ákveðnum málum eða öllum málum á tilteknu póstnúmeri.
Ráðið þakkar kynninguna.
3.
Deiliskipulag - Landbúnaðarsvæði L-7
Málsnúmer 202002020
Borist hefur fyrirspurn frá Ragnari Þór Jóhannssyni varðandi land við Lyngfell, nánar tiltekið við gamla eggjabúið, þar sem samkvæmt aðalskipulagi er gert ráð fyrir tómstundabúskap og möguleika á útihúsum.
Skipulagsfulltrúi leggur til að deiliskipulagsvinna við svæðið verði tekin upp að nýju.
Í ljósi áhuga á svæði undir tómstundabúskap felur ráðið starfsmönnum að taka upp deiliskipulagsvinnu við Lyngfell og útfæra hugmyndir að lóðum undir tómstundabúskap. Mikilvægt er að vanda skilyrði lóðaleigusamninga varðandi umhirðu, frágang svæðis og meðferð búfjárs í tengslum við lóðaúthlutun til framtíðar.
4.
Brekastígur 33 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202609052
Erindi vísað af 92. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Páll H. Zóphóníasson, fyrir hönd lóðarhafa að Brekastíg 33, sækir um byggingarleyfi vegna endurbóta og breytinga á húsnæðinu. Fyrirhugað er að endurnýja timburvirki hússins, breyta innra skipulagi og hækka húsið um 15 cm án þess að breyta þakhalla. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á gluggum og uppsetningu svala. Húsið var byggt árið 1925 og því var leitað umsagnar Minjastofnunar Íslands, sem gerir ekki athugasemd við breytingarnar.
Ráðið samþykkir erindið og fellur frá grenndarkynningu með vísan til 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem ráðið metur sem svo að breytingin hafi óveruleg grenndaráhrif. Skriflegt samþykki nágranna vegna breytinganna liggur fyrir.
5.
92. Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
Málsnúmer FUN0448
Fundargerð lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar.