Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
447. fundur
29. október 2026
kl.
16:18
-
17:15
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
formaður
Auðunn Haraldsson
aðalmaður
Ármann Halldór Jensson
aðalmaður
Jessý Friðbjarnarsdóttir
aðalmaður
Linda Rós Sigurðardóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dagný Hauksdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Iðnaðarsvæðis í Eldfellshrauni - norðurhluti
Skipulagsfulltrúi leggur fram til kynningar á vinnslustigi tillögu að Deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Eldfellshrauni - norðurhluti. Skipulagið nær til 6,4 ha svæðis og gerir ráð fyrir svæði fyrir lageringu- og vinnslu jarðvegsefna auk lóðar og byggingarreits fyrir steypustöð. Gert er ráð fyrir að landið sé lækkað um sirka 5 metra og að svæðið verði að mestu umkringt með mönum.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að kynna á vinnslustigi Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Eldfellshrauni - norður hluti skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningin verður auglýst þegar breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sem gerir ráð fyrir breytingu svæðisins frá athafnasvæði í iðnaðarsvæði hefur tekið gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
2.
Gönguleið á Helgafell
Vestmannaeyjabær hlaut styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir skipulagi og hönnun gönguleiðar á Helgafell. Lögð eru fram drög að leiðum og útfærslu göngustíga á Helgafell unnin af Sif Hjaltdal Pálsdóttir landslagsarkítekt hjá Landslag.
Ráðið þakkar kynninguna, tekur jákvætt í framlagða tillögu og felur starfsmönnum framgang málsins.
Eldfell, Heimaklettur og Helgafell hafa fengið styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða og mikilvægt að áfram verði unnið að hönnun og framkvæmd gönguleiðanna.
3.
Árvekniátak um miðlun upplýsinga um leyfisskyldar framkvæmdir
Starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasvið kynnir fyrirhugað árverkniátak um leyfisskyldar framkvæmdir. Markmið átaksins er að auka vitund íbúa og framkvæmdaaðila um hvaða framkvæmdir eru leyfisskyldar og hverjar ekki, ásamt því að hvetja fólk til að kynna sér þær reglur sem gilda áður en ráðist er í framkvæmdir.
Gert er ráð fyrir að upplýsingum verði miðlað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðla.
Gert er ráð fyrir að upplýsingum verði miðlað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðla.
Ráðið fagnar framtakinu og samþykkir að farið verði í árvekniátak á leyfisskyldum framkvæmdum í sveitarfélaginu þar sem áhersla verður á myndræna upplýsingagjöf til íbúa og framkvæmdaaðila. Ráðið skipar byggingarfulltrúa, skipulagsfulltrúa og fulltrúa frá hverju framboði; Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, Lindu Rós Sigurðardóttur og Jessý Friðbjarnardóttur í hóp sem fylgir málinu eftir.
4.
Leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga
Lat fram til kynningar leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðarvísirinn er afrakstur aðgerðar C.10 í núgildandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Hann var unnin á grundvelli reynslu og niðurstaða tilraunaverkefna sem fóru fram í fimm íslenskum sveitarfélögum á árunum 2022-2024 og var samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Helstu breytingar fela í sér hækkaðan hita, aukna úrkomu, hopun jökla og hækkaða sjávarstöðu. Afleiðingarnar eru m.a. aukin nattúruvá og öfgaveður, áhrif á vatnagæði, áhrif á virkni fráveitukerfa, aukin viðhaldsþröf vegasamgangna, flóðahætta Sérstaklega er fjallað um aðlögun í skipulagsgerð sveitarfélaga.
Helstu breytingar fela í sér hækkaðan hita, aukna úrkomu, hopun jökla og hækkaða sjávarstöðu. Afleiðingarnar eru m.a. aukin nattúruvá og öfgaveður, áhrif á vatnagæði, áhrif á virkni fráveitukerfa, aukin viðhaldsþröf vegasamgangna, flóðahætta Sérstaklega er fjallað um aðlögun í skipulagsgerð sveitarfélaga.
Ráðið þakkar kynninguna og tekur undir mikilvægi þess að fyrirbyggjandi nálgun sé beitt til að auka viðnámsþrótt byggðar í Vestmannaeyjum gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga.
5.
90. Afgreiðslufundur Byggingafulltrúa
Fundargerð lögð fram til staðfestingar.
Ráðið staðfestir fundargerðina.