Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 á tímabilinu 15. desember 2025 - 4. febrúar 2026. Athugasemdir bárust á kynningartíma frá þremur aðilum. Greinargerð með viðbrögðum ráðsins vegna athugasemda var lögð fram á 443 fundi ráðsins þann 18. ágúst 2026. Til að koma til móts við athugasemdir fól ráðið lóðarhafa við Strandveg 44 að draga úr umfangi og grenndaráhrifum skipulagsáformanna m.a. með því að draga úr byggingarmagni, draga frekar inn hliðar og bæta við skilmálum um útlit og dagsbirtu. Fyrirliggjandi gögn samræmast greinargerð og samantekt um breytingar lagðar fram á fundinum.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis H1 og Miðbæjar M-1 norðan Strandvegs vegna uppbyggingaráforma við Strandveg 44 skv. 3. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn að hún verði staðfest.
Ráðið þakkar umsagnaraðilum fyrir framkomnar umsagnir og ábendingar sem hafa verið teknar til skoðunar við vinnslu tillögunnar. Á grundvelli þeirra umsagna og þeirrar vinnu sem farið hefur fram hafa verið gerðar breytingar á tillögunni þar sem talið hefur verið að þær samræmist markmiðum skipulagsins og þeim hagsmunum sem málið varðar.
Að mati ráðsins hefur verið brugðist við athugasemdum eins og kostur er og tillagan með þeim breytingum sem gerðar hafa verið felur í sér málefnalegt jafnvægi milli þeirra sjónarmiða og hagsmuna sem fram hafa komið í skipulagsferlinu.
Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta hafnaraðstæður, siglingaröryggi og nýtingu hafnarsvæðisins. Samhliða styttingu á garði verður unnið að dýpkun austan og vestan megin við garðinn. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í nóvember 2026.
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu var lögð fram til HMS 14. júlí 2026 og var niðurstaða ákvörðunar HMS þess efnis að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum birt 18. ágúst 2026 (Skipulagsgátt mál nr. 880/2026).
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir styttingu Hörgeyrargarðs í Vestmannaeyjahöfn skv. 14. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Leyfið er veitt á grundvelli fyrirliggjandi gagna og með þeim skilyrðum og fyrirvörum sem fram koma í umsögnum og leyfisgögnum.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að útbúa og gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við umsókn og gildandi deiliskipulag svæðisins.
Við kynningu á vinnslustigi lagði Vegagerðin sem veghaldari við Strembugötu fram athugasemdir við skipulagið sem þarf að bregðast við.
Lögð er fram tillaga að lóðarmörkum sem kynnt hefur verið umsækjanda.
Ráðið lýsir yfir ánægju með átakið og felur byggingarfulltrúa framgang málsins.
Byggingarfulltrúi mun senda áskoranir um úrbætur á lóðarhafa og eigendur óleyfisskyldra gáma á næstu vikum.