Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Tillaga frá M-lista
Miðflokkurinn leggur til að málinu verði frestað og að haldinn verði fundur með hagsmunaaðilum áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Markmiðið verði að móta skýra og heildstæða framtíðarsýn fyrir uppbyggingu íþróttasvæðisins við Hástein, þar sem horft verði til framtíðarþarfa íþróttafélaga og annarra notenda svæðisins.
Tillaga felld með fjórum atkvæðum D og E lista gegn einu atkvæði M lista.
Bókun frá D-lista
Unnið hefur verið jafnt og þétt að framtíðarskipulagi og uppbyggingu íþróttamála í Vestmannaeyjum á síðustu árum í samstarfi við hagsmunaaðila. Í ljósi þess að fyrir liggur samningur við rekstraraðila um uppbyggingu á svæðinu telja undirrituð tillöguna til þess fallna að tefja frekari framkvæmdir og uppbyggingu á aðstöðu til heilsuræktar sem nú þegar hefur verið samþykkt á svæðinu. Auglýsing deiliskipulagsins mun gefa hagsmunaðilum gott tækifæri til að koma fram með athugasemdir og gefa möguleika á að hafa mótandi áhrif á deiliskipulagsbreytinguna. Undirrituð taka þó undir mikilvægi þess að þróa áfram framtíðarsýn íþróttasvæðisins í góðri samvinnu við hagsmunaaðila.
Auðunn Haraldsson (sign)
Ármann Halldór Jensson (sign)
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign)
Bókun frá M-lista
Afstaða Miðflokksins hefur verið skýr. Við styðjum metnaðarfulla uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum, en teljum að svo stórt og kostnaðarsamt verkefni verði að byggja á skýrri framtíðarsýn og raunverulegu samráði við hagsmunaaðila. Ákvarðanir sem teknar eru nú munu móta íþróttasvæðið til framtíðar og því þarf að horfa á svæðið í heild. Við hefðum meðal annars viljað sjá framtíðaraðstöðu fyrir fimleika koma inn í þá umræðu. Þar sem tillaga okkar um frestun og frekara samráð var ekki samþykkt getum við ekki stutt málið í þeirri mynd sem það liggur nú fyrir.
Linda Rós Sigurðardóttir (sign)
Bókun frá D-lista
Það er rétt að um kostnaðarsamar framkvæmdir er að ræða. Við viljum þó góðfúslega benda á að samkvæmt fyrirliggjandi samkomulagi ber rekstraraðili kostnað af þeirri uppbyggingu sem deiliskipulagsbreytingin tekur til.
Auðunn Haraldsson (sign)
Ármann Halldór Jensson (sign)
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign)
Bókun frá M-lista
Miðflokkurinn tekur ekki undir að fram hafi farið fullnægjandi samráð við hagsmunaaðila um framtíðarskipulag svæðisins. Hinir ýmsu hagsmunaaðilar hafa þvert á móti kallað eftir aukinni kynningu og frekara samráði. Auglýsing deiliskipulagstillögu getur ekki komið í stað raunverulegs samtals og samráðs við þá sem málið varðar. Slíkt samráð þarf að eiga sér stað áður en meginlínur uppbyggingar og framtíðarskipulags svæðisins eru ákveðnar, þannig að sjónarmið þeirra sem koma til með að starfa og/eða nýta aðstöðuna í íþróttamiðstöðinni geti haft raunveruleg áhrif á mótun tillögunnar.
Linda Rós Sigurðardóttir (sign)
Samþykkt með fjórum atkvæðum D og E lista, gegn einu atkvæði M lista.
Erindi vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Ráðið óskar jafnframt eftir því við starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasviðs að listaverkið Sólsteinn sem var hluti af verkefninu Hraun og menn verði komið fyrir við dvalarsvæði við nýjan inngang íþróttamiðstöðvar. Listaverkið fær þá áfram að njóta sín í alfaraleið.