Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Ráðið þakkar samráðshópi um málefni fatlaðs fólks fyrir veitt álit og þá yfirferð sem fram fór á aðstæðum við Strandveg 47A.
Með hliðsjón af niðurstöðu samráðshópsins um að nýr rampur myndi ekki bæta aðstöðu og að aðgengi sé ásættanlegt fyrir fólk í hjólastól samþykkir ráðið að falla frá kröfu um breytingu á aðkomu að húsinu. Ráðið tekur jafnframt undir ábendingar samráðshópsins um mikilvægi þess að við framtíðarbreytingar á aðgengi verði horft til aðgengis að húsnæðinu í heild sinni og að samráð verði haft við hópinn eftir því sem við á.
Ráðið bendir á að umfjöllun málsins hefur verið umfangsmikil og kallað á töluverða vinnu bæði af hálfu sveitarfélagsins og lóðarhafa. Ráðið ítrekar því mikilvægi þess að framkvæmdir séu ávallt í samræmi við samþykkt hönnunargögn og útgefin leyfi. Frávik frá samþykktum uppdráttum geta kallað á breytingar, nýja málsmeðferð og eftir atvikum kostnaðarsamar úrbætur.
Ráðið leggur ríka áherslu á að það sé óásættanlegt verklag að óska eftir og fá samþykki fyrir tiltekinni framkvæmd, framkvæma síðan með öðrum hætti og óska að því loknu eftir samþykki fyrir breyttu fyrirkomulagi. Slík málsmeðferð getur ekki orðið viðtekin venja.
Þó fyrri krafa um úrbætur sé afturkölluð í þessu tiltekna máli felur sú niðurstaða hvorki í sér almenna heimild til frávika frá samþykktum uppdráttum né fordæmi fyrir afgreiðslu annarra mála.
Ábendingar hafa borist varðandi erfiða aðkomu að svæðinu, sérstaklega fyrir rútur og um slæma ásýnd svæðisins. Lagt er fram til umræðu endurheimt svæðisins og framtíðarfyrirkomulag aðkomu við Sprönguna.
Heildarflatarmál hússins er 232,3 m² brúttó, þar af er 1. hæð 118,1 m² og 2. hæð 114,2 m². Lóðarstærð er 118,4 m² og nýtingarhlutfall 1,92.
Gert er ráð fyrir að nýta almenn bílastæði. Sorp verður staðsett á bæjarlandi í porti norðan megin við húsið.
Umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir vegna svalanna. Vegagerðin lagðist gegn upphaflegri tillögu um svalir á austurgafli vegna nálægðar við veghelgunar- og öryggissvæði Skildingavegar. Í framhaldi hefur Vegagerðin staðfest að hún geri ekki athugasemd við franskar svalir með útskögun að hámarki 30 cm.
Teikning: Björgvin Björgvinsson
Ráðið samþykkir stækkun innkeyrslu að hámarki 7,5m sbr. Vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantsteina. Breytingar á gangstétt eða lögnum vegna framkvæmda skal vera í samráði við Umhverfis- og framkvæmdasvið. Allur kostnaður í tengslum við innkeyrslur og bílastæði er á kostnað lóðarhafa. Starfsfólki er falið að ræða við lóðarhafa varðandi útfærslu á innkeyrslu og úrtöku úr kantstein.
Snyrtilegasta eignin
Snyrtilegasti garðurinn
Snyrtilegasta fyrirtækið
Endurbætur til fyrirmyndar
Framtak á sviði umhverfismála
Fleiri tilnefningar bárust Vestmannaeyjabæ en undanfarin ár. Skipulagsfulltrúi, formaður ráðsins D-listi, varaformaður M-listi og fulltrúi E-lista hafa farið yfir tilnefningar sem bárust og skoðað tilnefndar í vettvangsferð.