Fara í efni

Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja

443. fundur
18. ágúst 2026 kl. 16:16 - 18:35
í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður
Auðunn Haraldsson aðalmaður
Ármann Halldór Jensson aðalmaður
Jessý Friðbjarnarsdóttir aðalmaður
Linda Rós Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Strandvegur 44 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 202502135
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis H-1 vegna uppbyggingar við Strandveg 44 var lögð fyrir að lokinni auglýsingu á 437 fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 16. mars 2026. Niðurstaða ráðsins var að norðuhlið byggingarinnar yrði færð fjær byggingu við Tangagötu 10, auk þess sem lagðir voru fram tillögur að uppfærðum skilmálum og óskað eftir frekari upplýsingum um fyrirkomulag byggingarinnar.
Lóðarhafa hefur verið gert kunnugt um tillögur að uppfærðum skilmálum og hefur lagt fram drög að fyrirkomulagi byggingar við Strandveg 44 og bílakjallara.
Í maí 2026 voru kynntar nýjar leiðbeiningar m.a. fyrir viðmið um birtustundir í skipulagsgerð og ný ákvæði byggingarreglugerðar. Tillaga að breyttu deiliskipulagi og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma hafa verið metin út frá nýjum leiðbeiningum HMS.
Lögð eru fram viðbrögð ráðsins við athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.

Ráðið þakkar bréfriturum athugasemdir við auglýsinguna og hefur brugðist við þeim með meðfylgjandi greinargerð. Sem viðbrögð við athugasemdum er m.a. mögulegum íbúðum fækkað, dregið úr byggingarmagni, fjarlægð aukin milli Tangagötu 10 og Strandvegs 44 og skilmálum um hljóðstig vegna atvinnustarfsemi bætt inn. Heildaryfirlit yfir viðbrögð ráðsins við athugasemdum má sjá í meðfylgjandi greinargerð.

Breyting deiliskipulagsins frá auglýstri tillögu er til þess fallin að koma til móts við athugasemdir, draga úr og gera betur grein fyrir grenndaráhrifum. Ráðið felur lóðarhafa að uppfæra skipulagsgögn í samræmi við greinargerð og leiðbeiningar ráðsins um breytingar á byggingarreit ásamt nýjum skilmálum. Ráðið metur það sem svo að með umræddum breytingum sé komið til móts við athugasemdir með fullnægjandi hætti og tryggt að grenndaráhrif séu ásættanleg.

2.
Surtsey - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun þyrlupallar
Málsnúmer 202608060
Borist hefur erindi frá Hólmfríði Sigurðardóttir fyrir hönd Surtseyjarfélagsins varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir stækkun þyrlupalls í eynni. Núverandi þyrlupallur er 36 fermetrar og til stendur að stækka pallinn í um 100 fermetra, sbr. meðfylgjandi gögnum.
Íslenska ríkið er landeigandi Surtseyjar og fer Surtseyjarstofa með umsjón með eynni. Eyjan tilheyrir lögumdæmi Vestmannaeyjabæjar og fer Vestmannaeyjabær með skipulagsyfirvarld.
Forsætisráðuneytið og Náttúruverndarstofnun hafa veitt samþykki vegna framkvæmdarinnar fyrir sitt leyti.
Ráðið samþykkir framkvæmdina fyrir sitt leyti og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
3.
Reglur um smáhýsi, skúra og garðveggi
Málsnúmer 202505090
Lögð fram drög að uppfærðum reglum um smáhýsi, skúra og girðingar í Vestmannaeyjum.
Ákvæði varðandi samræmi við deiliskipulag og byggingarleyfi hefur verið gert skýrara og skilgreind hafa verið viðmið fyrir girðingar við bæjarland og umferarhorn.

Ráðið samþykkir uppfærðar reglur.

Erindi vísað til bæjarstjórnar.

4.
Samþykkt um hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum
Málsnúmer 202608058
Lögð fram drög að nýrri samþykkt um hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum. Samþykktin er uppfærð í samræmi við breytta löggjöf ásamt því að innifalið verður í árlegu gjaldi fyrir hvern skráðan hund ábyrgðartrygging vegna tjóns sem dýrið kann að valda þriðja aðila. Eins er því bent til kattaeigenda að hafa bjöllur á köttum sínum yfir varptíma fugla og pysjutímabil og takmarka útiveru þeirra eftir atvikum.
Ráðið samþykkir uppfærða samþykkt Vestmannaeyjabæjar um hunda- og kattahald og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Gjaldskrá hunda og kattahald - 2026
Málsnúmer 202603036
Lögð fram uppfærð gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Vestmannaeyjum í samræmi við breytingar á samþykkt um hunda- og kattahald. Gjaldskrá hefur verið leiðrétt með tilliti til vísitölu og er nýbreytni að nú verður ábyrgðartrygging hunda innifalin í gjaldi. Slíkt fyrirkomulag hefur gefist vel í öðrum sveitarfélögum. Gegn staðfestingu á þátttöku í hundanámskeiði fæst 30% afsláttur af árgjaldi. Greiða þarf lægra skráningar- og árgjald fyrir ketti en hunda.

Ráðið samþykkir fyrirlagða gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

Skráning dýra fer fram í íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

6.
Hundasvæði - Aðstaða og framtíðarsýn
Málsnúmer 202608059
Lagt fram til umræðu núverandi aðstaða og framtíðarsýn fyrir staðsetningu hundasvæðis. Núverandi hundasvæði, þar sem lausaganga hunda er heimil, er staðsett á afmörkuðum reit á svokölluðu Haugasvæði sunnan Eldfells. Svæðið hefur verið afar vinsællt til útiveru með hunda. Vestmannaeyjabær hefur hafið gerð skipulagsáætlana sem gera ráð fyrir efnisvinnslu á svæðinu. Huga verður að framtíðarsýn varðandi staðsetningu hundasvæðisins ef af efnisvinnslu verður á svæðinu.
Starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs hafa fundað með fulltrúum dýravinafélags Vestmannaeyja um stöðu mála vegna rannsóknarvinnu og jarðrasks við hundasvæðið. Auk þess sem ráðinu hafa borist athugasemdir vegna stöðunnar. Í dag eru 71 hundur og 15 kettir skráðir í sveitarfélaginu.

Ráðið ítrekar mikilvægi þess að útivistarsvæði fyrir hunda sé aðgengilegt og öruggt fyrir bæði hunda og eigendur þeirra. Á hundasvæðinu er afgirt hundagerði. Ráðið minnir einnig á að hundar eru ávallt á ábyrgð eigenda sinna.

Mikilvægt er að huga að nýrri framtíðarstaðsetningu hundasvæðisins muni jarðrask og efnisvinnsla á svæðinu verða umfangsmeiri og til frambúðar.

Ráðið felur starfsmönnum framgang málsins þar sem m.a. möguleg framtíðarstaðsetning hundasvæðis verði skoðuð og lögð fyrir ráðið.

Ráðið beinir hvatningu til bæjarbúa að skrá hunda- og/eða ketti sína til sveitarfélagsins. Tekjur sveitarfélagsins af gjöldum vegna dýrahalds gera sveitarfélaginu kleift að bæta aðstöðu og utanumhald vegna dýrahalds.

7.
Fundargerð 85. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 202608057
Lögð fram til staðfesting fundargerð 85. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Ráðið staðfestir fundargerðina.
8.
Fundargerð 25. afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa
Málsnúmer 202608056
Lögð fram til staðfesting fundargerð 25. afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa.

Ráðið staðfestir fundargerðina.