Fara í efni

Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja

442. fundur
28. júlí 2026 kl. 15:21 - 17:05
í Ráðhúsi Vestmannaeyja
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður
Auðunn Haraldsson aðalmaður
Jessý Friðbjarnarsdóttir aðalmaður
Ragnheiður Lind Geirsdóttir varamaður
Sonja Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dagný Hauksdóttir starfsmaður
Rannveig Ísfjörð starfsmaður
Dagskrá
1.
Skipan í umferðarhóp
Málsnúmer 202607176
Formaður ráðsins leggur fram erindi um skipan í Umferðarhóp sem ferð með málefni umferðar og umferðaröryggis í bæjarfélaginu.

Ráðið skipar Hjalta Enok Pálsson ökukennara og Lindu Rós Sigurðardóttur í umferðarhóp, í umferðarhópnum sitja auk fulltrúa Umhverfis- og skipulagsráðs, Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn, Brynjar Ólafsson sviðssjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Dagný Hauksdóttir skipulags- og umhverfisfulltrúi.

Hópurinn veitir umhverfis- og skipulagsráði ráðgjöf varðandi málefni er varða umferðar tengd mál og fundar eftir þörfum þegar málum er vísað til hópsins frá ráðinu.

2.
Deiliskipulag Íþróttasvæðis við Hástein - breyting líkamsræktarsalur og niðurrif klefa
Málsnúmer 202607175
Lögð fram tillaga um að vinna verði hafin við breytingu á Deiliskipulagi Íþróttasvæðis við Hástein vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar líkamsræktaraðstöðu og niðurrifi búningsklefa vestan við eldri íþróttasal íþróttahússins.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela starfsfólki sviðsins að hefja vinnu við breytingar á deiliskipulagi Íþróttasvæðis við Hástein. Breytingarnar fela í sér stækkun á byggingarreit vegna uppbyggingar World Class á líkamsræktaraðstöðu skv. fyrirliggjandi útboðsskilmálum auk niðurrifs á elstu búningsklefum hússins.

Erindið samþykkt með fjórum atkvæðum D- og E- lista. Fulltrúi M- lista greiðir atkvæði gegn tillögunni.

Bókun fulltrúa M- lista
Vegna þeirra megnu óánægju sem ríkir vegna málsins og hefur komið fram bæði í greinarskrifum og hjá hagaðilum mun Miðflokkurinn ekki styðja þá tillögu sem liggur hér fyrir.

Sonja Andrésdóttir (sign.)

Bókun fulltrúa D- lista
Í ljósi þess að samningar við rekstraraðila liggja fyrir er mikilvægt til að hægt sé að halda áfram uppbyggingu líkamsræktaraðstöðu í Vestmannaeyjum að halda áfram með ferlið. Íbúar og hagaðilar munu að sjálfsögðu geta komið athugasemdum sínum á framfæri í deiliskipulagsferlinu.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Ragnheiður Lind Geirsdóttir (sign.)
Auðunn Haraldsson (sign.)
3.
Boðaslóð 23
Málsnúmer 202606171
Erindi vísað af 84. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Bragi Magnússon, fyrir hönd lóðarhafa að Boðaslóð 23, sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á núverandi bílgeymslu. Bílgeymslan er stækkuð til suðurs og vesturs um 25,4 m² brúttó (17,9 m² nettó), þannig að heildarstærð hennar verður 65,9 m² brúttó. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Teikning: Bragi Magnússon
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 2. mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
4.
Hrauntún 31
Málsnúmer 202607014
Erindi vísað af 84. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Bragi Magnússon sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Hrauntúni 31, um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishús. Viðbyggingin tengir saman núverandi íbúðarhús og bílgeymslu og stækkar íbúðarhúsið með þremur svefnherbergjum og þvottahúsi. Stærð viðbyggingar er 79,9 m2. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.

Teikning: Bragi Magnússon
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 2. mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
5.
Búhamar 22
Málsnúmer 202607130
Erindi vísað af 84. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Sigurður Smári Benónýsson sækir, fyrir hönd lóðarhafa að Búhamri 22, um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi ásamt stakstæðri bílgeymslu. Húsið er einnar hæðar með risþaki. Heildarstærð mannvirkjanna er 183,8 m² brúttó (íbúð 133,3 m² og bílgeymsla 50,5 m²). Nýtingarhlutfall lóðar er 0,27. Sbr. innsend gögn. Fyrirliggur samþykki nágranna aðliggjandi lóðar.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Teikning: Sigurður Smári Benónýsson
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 2. mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
6.
Vinnureglur um smáhýsi, skúra og garðveggi - tillaga að breytingu
Málsnúmer 202607177
Lögð er fram tillaga um að vinnureglur um smáhýsi, skúra og garðveggi verði uppfærð. Breytingin felur í sér að samræmi við deiliskipulag sé ekki eitt af kröfum (tilgreindar í kafla 6.5) sem þurfi að uppfylla til að byggingarfulltrúi geti fullnaðarafgreitt umsóknir, heldur nægi að uppfylla aðrar kröfur sem tilgreindar eru á listanum.
Ráðið felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra reglurnar í ljósi umræðna á fundinum og leggja fyrir næsta fund ráðsins til staðfestingar.
7.
Goðahraun 34 - Umsókn um stækkun á bílastæði
Málsnúmer 202607178
Ísak Rafnsson fyrir hönd lóðarhafa við Goðahraun 34 sækir um stækkun á bílastæði og úrtöku á kanntstain við lóðina sbr. meðfylgjandi gögnum.
Ráðið hafnar erindinu og vísar í vinnureglur um innkeyrslur sem samþykktar voru árið 2021. Ráðið felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að ræða við bréfritara.
8.
ÍBV-Íþróttafélag - Umsókn um tækifærisleyfi vegna Húkkaraballs
Málsnúmer 202607183
ÍBV-Íþróttafélag sækir um tækifærisleyfi fyrir tónleikahöldum Húkkaraballs sem haldið verður á bílastæði við Strandveg 50 aðfaranótt föstudagins 31. júlí 2026. Dansleikurinn byrjar klukkan 23:00 fimmtudaginn 30. júlí og mun standa til klukkan 3:00 föstudaginn 31. júlí 2026.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti afnot af porti við Strandveg 50 sbr. umsókn.
Ráðið áréttar skilyrði um að allt rusl verði hreinsað á svæðinu sem allra fyrst að viðburði loknum.
9.
Lundinn Kirkjuvegi 21 - Umsókn um afnot af bæjarlandi og útitónleika yfir Þjóðhátíð
Málsnúmer 202607181
Hlynur Már Jónsson fyrir hönd Lundans við Kirkjuveg 21 sækir um tækifærisleyfi fyrir skemmtanahaldi utandyra og afnota af bæjarlandi á Þjóðahátíð 2026.
Sótt er um skemmtanahald utandyra á tímanum 29. og 30. júlí - 18:00-5:00, 31. júlí - 13:00-21:00, 1. og 2. ágúst - 12:00-23:00.
Sótt er um afnot af bílastæði við hlið Lundans þar sem staðsettur verður söluvagn fyrir mat og á lóð við Kirkjuveg 23 fyrir salerni á opnunartíma yfir helgina. Samhliða afnoti af bæjarlandi er sótt um götulokun frá klukkan 14:00-20:00, sbr. meðfylgandi gögn.

Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti götulokun við Vestmannabraut föstudaginn 31. júlí frá kl. 15:00-20:00 og helgina 1. - 2. ágúst frá klukkan 14:00 – 20:00. Ráðið samþykkir stöðuleyfi fyrir salerni og fyrir afnotum af bæjarlandi á bílastæðum við Vestmannabraut við hlið Kirkjuvegs 21 og við Kirkjuveg 23.

Ráðið samþykkir afnot af lóð við Kirkjuvegi 19 fyrir tímabundnu sviði og aðkoma að því dagana 31. júlí - 2. ágúst. Ekki er heimild fyrir afnotum af stærra svæði á lóð við Kirkjuveg 19, sbr. mynd í meðfylgjandi gögnum.

Ráðið samþykkir stöðuleyfi en áréttar mikilvægi þess að lögum um áfengissölu sé fylgt í hvívetna og umgengni og frágangur um svæðið verði fullnægjandi.

10.
Gott Bárustíg 11 - Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir söluvagn yfir Þjóðhátíð 2026
Málsnúmer 202607182
Sigurður Friðrik Gíslason fyrir hönd veitingastaðarins Gott sækir um stöðuleyfi fyrir söluvagn á horni Vesturvegs og Bárustígs dagana 30. júlí - 3. ágúst 2026.
Ráðið samþykkir stöðuleyfi og tækifærisleyfi til torgsölu. Jafnframt samþykkir ráðið fyrir sitt leiti götulokun við Bárustíg 31. júlí frá 15:00-20:00 og 1. - 2. ágúst frá 14:00-20:00.
Ráðið áréttar mikilvægi þess að lögum um áfengissölu sé fylgt í hvívetna og umgengni og frágangur um svæðið verði fullnægjandi.
11.
84. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 202607179
Fundargerð lögð fram til staðfestingar.
12.
Almannavarnalögn NSL4 - Framkvæmdaleyfi
13.
Búhamar 90 - Tilkynningaskyld mannvirkjagerð - undanþegin byggingaheimild og leyfi
Málsnúmer 202607053
Erindi vísað af 84. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa. Baldvin Þór Sigurbjörnsson fyrir hönd lóðarhafa við Búhamar 90 sækir um að reisa smáhýsi á lóð. Smáhýsið uppfyllir skilmála fyrir afgreiðslu án umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsráði, tilgreindar í kafla 6.5 í Vinnureglum um smáhýsi, skjólveggi og girðingar í Vestmannaeyjum, að undanskyldum skilmála um að vera í samræmi við deiliskipulag en ekki er deiliskipulag í gildiá svæðinu.
Ráðið samþykkir erindið og vísar því til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.