Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Ein umsögn barst frá Vegagerðinni á kynningartíma og snýr hún að takmörkun á stækkun gatnamóta við Heiðarveg og Strandveg sem kunna að hljótast af skipulagsbreytingunni.
Ráðið hafnar fyrirspurninni. Nýtt deiliskipulag var samþykkt fyrir svæðið á síðarihluta síðasta árs og var lóðunum úthlutað á þeim forsendum.
Samþykki fyrir lóðarstækkun við Flatir 16, frá lóðarhafa við Flatir 14 liggur fyrir. Samþykkið er háð samþykki á stækkun lóðar og innkeyrslu við Flatir 14.
Teikningar: Bragi Magnússon
Veislutjaldið er staðsett austan við veitingartjaldið. Um er að ræða 6 holur með steyptum undirstöðum, 60 cm á alla kanta, í horn og fyrir miðju langhliðar tjaldsins. Frágangur verður með þeim hætti að undirstöðurnar verða í sömu hæð og grasflöturinn og þær huldar með torfi.
Úthlutun hefur verið staðfest á öllum lóðum nema við Miðgerði 2 og 9. Lóð nr. 9 er í úthlutunarferli en fyrir lóð nr. 2 liggur fyrir að enginn umsækjenda hyggst nýta lóðina.
Skipulagsfulltrúi leggur til að lóð við Miðgerði 2 verði auglýst á nýjan leik.
Ráðið samþykkir að auglýsa lóð við Miðgerði 2 lausa til úthlutunar.
Verði lóðinni ekki úthlutað eða falli hún aftur til sveitarfélagsins mun hún falla undir lausar lóðir.
- Snyrtilegasta fyrirtækið
- Snyrtilegasti garðurinn
- Snyrtilegasta eignin
- Vel heppnaðar endurbætur
- Framtak á sviði umhverfismála
Samkvæmt lögum er almennt háfaveiðitímabil lunda frá 1. júlí - 15. ágúst.
Ráðið telur mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins en samkvæmt Náttúrverndarstofnun benda nýjar stofngreiningar til þess að stofninn sé á áframhaldandi niðurleið og væri það jafnvel án veiða. Það megi fyrst og fremst rekja til hlýnunar sjávar og þar með minna fæðuframboðs. Náttúrustofa Suðurlands mælir ekki með að lundaveiði verði heimiluð.
Ráðið samþykkir að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum en takmarka veiðarnar við dagana 23. júlí - 15. ágúst 2026. Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að viðhalda þeirri menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt. Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð í veiðum s.l. ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsa sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðar og virðingu við lundastofninn og mikilvægi hans.
Ráðið minnir á að allir sem stunda veiðar á fuglum þurfa að hafa veiðikort.