Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Alls bárust 8 umsagnir frá opinberum umsagnaraðilum á auglýsingartíma tillögunnar.
Meðfylgjandi er greinargerð með viðbrögðum vegna umsagna. Umsagnir leiddu ekki til breytinga á auglýstri tillögu.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsáætlanir sem fela í sér breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna lagningu nýrrar almannavarnarlagnar NSL4. Ráðið þakkar bréfriturum og leggur fram greinargerð með viðbrögðum við athugasemdum. Erindi vísað til bæjarstjórnar.
Sjö umsagnir bárust vegna breytingar á aðalskipulagi og sex vegna breytingar á deiliskipulagi. Umsagnirnar koma allar frá opinberum umsagnaraðilum.
Lögð er fram greinargerð með viðbrögðum við athugasemdum.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leyti að staðfesta skipulagsáætlanir sem fela í sér annars vegar breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar iðnaðarsvæðis I-3 fyrir fiskeldi í Viðlagafjöru og hins vegar breytingu á Deiliskipulagi við Viðlagafjöru.
Ráðið þakkar bréfriturum og leggur fram greinargerð með viðbrögðum við athugasemdum. Erindi vísað til bæjarstjórnar.
Íbúakosningar um þróunarsvæðið M2 dagana 4.-16. maí sl.
Spurt var:
Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem fór undir hraun í gosinu 1973?
Á kjörskrá vegna íbúakosninga voru 3.538 kjósendur. Atkvæði greiddu 1.526, kjörsókn var því 43,13%
Atkvæðin féllu þannig: Já sögðu 1.053 eða 69% greiddra atkvæða Nei sögðu 459 eða 30,08% greiddra atkvæða Auðir seðlar voru 14 eða 0,92% greiddra atkvæða, Engir seðlar reyndust ógildir.
Þrjár umsagnir bárust vegna málsins auk fyrirspurna og ábendinga í tölvupósti.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir byggingaráform við Goðahraun 3.
Ráðið þakkar framkomnar athugasemdir á umsagnatíma ásamt greinargóðum viðbrögðum skipulagsfulltrúa við þeim athugasemdum.
Við færslu á byggingarlínu Goðahrauns 13 til vesturs færðist byggingarlína fyrir götuna og þar með byggingarlína Goðahrauns 2 og 3 til vesturs en þannig er stuðlað að samfellu í götumynd.
Almennt er leitast við að byggingarreitir séu í byggingarlínu meðfram vegum líkt og má sjá á byggingarlínu handan götunnar. Hvað varðar ábendingar um skýrari upplýsingagjöf og heildstæðari hverfissýn þakkar nýskipað umhverfis- og skipulagsráð greinargóðar og skýrar ábendingar og mun taka þær til greina við afgreiðslu sambærilegra erinda.
Samkvæmt 6.4.11. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 skal breidd skábrauta vera minnst 0,90 m og ekki minni en 1,30 m á lengri leiðum mælt á milli handlista.
Á aðaluppdrætti sem samþykktur var af umhverfis- og skipulagráði var rampurinn sýndur 1,0 metar að að breydd. Á sérteikningum var breidd rampsins ekki sýnd en ætla má frá teikningum að hann sé um 1,0 m. Í framkvæmd var rampurinn 1,4 metrar að breidd.
Gangstéttin er 2,8 metrar (með kanti) og verða því eftir 1,4 metrar af gangstéttinni.
Ráðið stendur við fyrri ákvörðun um að hafna erindinu enda engar nýjar forsendur fyrir endurskoðun fyrri ákvörðunar. Rampur fyrir hreyfihamlaða nær 0,4 m út fyrir samþykkt ráðsins um afnot af bæjarlandi.
Um er að ræða gangstétt á miðbæjarsvæði þar sem umferð er mikil og engin gangstétt handan götunnar. Lóðarhafi skal draga úr breidd rampsins þannig að hann falli innan áður samþykkts svæðis.
Þrátt fyrir góðan vilja við að bæta aðgengi að húsnæði Oddfellow reglunnar orkar það tvímælis að skerða á sama tíma breidd gangstéttar verulega án heimildar og skerða þannig almennt aðgengi gangandi vegfarenda, vegfarenda með barnavagna og vegfarenda á hjólastólum um Strandveg.
Ráðið samþykkir innkeyrslu á lóð við Hásteinsveg 17 sbr. innsend gögn. Breytingar á gangstétt eða lögnum vegna framkvæmda skal vera í samráði við Umhverfis- og framkvæmdasvið.
Allur kostnaður í tengslum við innkeyrslur og bílastæði er á kostnað lóðarhafa. Starfsfólki er falið að ræða við lóðarhafa varðandi útfærslu á innkeyrslu og úrtöku úr kantstein.
Ráðið samþykkir erindið en leggur áherslu á að ákvæðum áfengislaga nr. 75/1998 sé framfylgt. Staðsetning vagnsins skal vera samþykkt af goslokanefnd og ekki hindra hátíðardagskrá.
Arndís Bára Ingimarsdóttir og Jessý Friðbjarnardóttir véku af fundi í þessu máli.
Ráðið samþykkir afnot af Herjólfsdal 31. júlí - 7. ágúst 2026 og fyrir sitt leyti af porti við Strandveg 50 þann 30. júlí 2026 sbr. umsókn.
Ennfremur vill ráðið setja sem skilyrði að allt rusl verði hreinsað á svæðunum sem fyrst. Hreinsa skal Herjólfsdal með fullnægjandi hætti í síðasta lagi fyrir 18. ágúst 2026 og fjarlægja öll færanleg mannvirki fyrir 25. ágúst 2026. Ráðið ítrekar að þetta á einnig við um brennustæði og næsta nágrenni við Fjósaklett.
Ráðið er hlynnt því að tjaldsvæði fyrir Þjóðhátíð verði á syðsta hluta Týsvallar til reynslu. Tjöldun á Þórsvelli hefur almennt gengið vel undanfarin ár. Hreinsun, frágangur og samstarf við umsjónaraðila tjaldsvæða hefur að sama skapi gengið vel og gefið gott fordæmi. Ráðið leggur ríka áherslu á öfluga hreinsun, gæslu og skipulag á svæðinu. Lagt er til að ástand á Týsvelli verði metið eftir Þjóðhátíð 2026.
Þó nokkur útbreiðsla hefur átt sér stað yfir Gamlahraunið og Eldfellshraun. Undanfarin ár hefur verið leitast við að takmarka útbreiðsluna á Gamlahraunin þar sem vistkerfið einkennist af mosagrónu hrauni og lyngi. Á Eldfellshrauni hefur lúpína þótt koma sér vel til landgræðslu en hún hefur einnig dreift sér þar sem eru mosagróin hraun og jarðminjar á náttúrumynjaskrá sem vert er að vernda, t.d. við Páskahraun.
Lúpína víkur í sumum tilfellum fyrir öðrum gróður tegunum en Kerfill virðist nú taka sér bólfestu og dreifast hratt.