Fara í efni

Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja

339. fundur
8. júlí 2026 kl. 15:00 - 16:08
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson formaður
Jóhann Ingi Óskarsson varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson aðalmaður
Grímur Gíslason varamaður
Guðjón Ragnar Rögnvaldsson varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Gjábakki
Málsnúmer 202404001
Hafnarstjóri fór yfir stöðuna á verkinu. Búið er að steypa rampinn og fjórar færur. Verið er að vinna í undirbúningu á síðustu steypufærslunni sem er við skipalyftu. Farið verður í að setja upp polla á næstu dögum. Fenderar sem voru keyptir á kantinn eru í tolli.
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir yfirferðina.
2.
100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar
Málsnúmer 202607024
Því miður þurfti að fresta afmælishátíð Landhelgisgæslunnar sem átti að vera á Nausthamarsbryggju 1. júlí vegna anna hjá gæslunni.
Umræður hafa verið um hvort minnisvarði um fyrsta björgunarskip Landhelgisgæslunnar sé rétt staðsett þar sem það hverfur inn í umhverfið eftir að uppbyggingu á svæðinu lauk.
Ráðið leggur til að minnisvarðinn verði reistur á hentugum stað til þess að minnast eljusemi Eyjamanna við kaup á björgunarskipinu Þór, síðar fyrsta skips Landhelgisgæslunnar. Ráðið felur hafnarstjóra að leiða samtal við helstu hagsmunaaðila um efnislega útfærslu og staðsetningu minnisvarðans, miðað við þær umræður sem þegar hafa átt sér stað. Markmiðið er að tryggja faglega og skipulega framkvæmd verkefnisins með tilliti til sögulegs gildis, samfélagslegs aðdráttar, kostnaðar og skipulagsmála.
3.
Lóðir á hafnarsvæðinu
Málsnúmer 202607025
Mikið plássleysi er á hafnarsvæðinu og þarf að huga að nýtingu á svæðinu.
Ráðið tekur undir áhyggjur vegna skorts á lóðaúrræðum við hafnarsvæðið og felur hafnarstjóra að leggja fram skýrar tillögur um aukna nýtingu lóða. Tillögurnar skulu fela í sér bæði kosti þess að afla nýs svæðis og að endurskipuleggja. Ráðið felur hafnarstjóra einnig að kanna kostnað við að farga Blátindi VE21 og upplýsa Minjastofnun um áformin.
4.
Skotbómulyftari
Málsnúmer 202606144
Hafnarstjóri hefur fengið tilboð í lyftara sem hentar þörfum hafnarinnar og Þjónustumiðstöðinni.
Ráðið þakkar hafnarstjóra og sviðstjóra fyrir vel unna vinnu og undirstrikar að þörf sé á slíkum búnaði í rekstri hafnarinar og sveitarfélagsins. Ráðið leggur til að málið verði rætt og tekið til ákvörðunar við gerð fjárhagsáætlunar í haust.
5.
Terra - uppsögn á samningi
Málsnúmer 202607030
Þann 29. júní 2026 barst frá Terra uppsögn á þjónustusamningi um úrgangsþjónustu fyrir Vestmananeyjabæ.
Ráðið felur sviðstjóra að vinna ítarlega úttekt á eftirfarandi valkostum og leggja fram skýra tillögu til afgreiðslu á næsta fundi ráðsins:

A. Að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur sorpsvæðisins og að boðinn verði út sorphirða sveitarfélagsins
B. Að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur sorpsvæðisins og sorphirðu
C. Að rekstur sorpsvæðisins og sorphirða verði boðin aftur út
6.
Gatnagerð - Sólhlíð
Málsnúmer 202601130
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 6-10 vegna gatnaframkvæmda í Sólhlíð.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundagerðir og þakkar sviðstjóra fyrir yfirferðina.
7.
Miðgerði - Gatnagerð og fráveita
Málsnúmer 202603164
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 1-3 vegna gatnaframkvæmda í Miðgerði.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundagerðir og þakkar sviðstjóra fyrir yfirferðina.