Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja
338. fundur
23. júní 2026
kl.
15:00
-
15:00
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson
formaður
Sæunn Magnúsdóttir
varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson
aðalmaður
Garðar Benedikt Sigurjónsson
aðalmaður
Guðbjörg Sól Sindradóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Fundardagskrá Framkvæmda- og hafnarráðs 2026
Formaður lagði fram tillögu að áætlun um dagsetningar funda árið 2026. Formaður framkvæmda- og hafnarráðs tók fram að breytingar geti orðið á fundadagskrá með skömmum fyrirvara.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundadagskrá, með fyrirvara um heimild til að boða til aukafunda eða fella niður einstaka fundi ef þörf krefur.
2.
Erindisbréf til til fulltrúa í ráðum skv. bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar 2026
Lögð fram drög að erindisbréfum fulltrúa í framkvæmda- og hafnarráði. Erindisbréfin eru unnin í samræmi við bæjarmálasamþykkt, sem samþykkt var árið 2020 og viðauka IV með samþykktinni.
Ráðið þakkar yfirferðina og hyggst leggja sérstaka áherslu á að fulltrúar ráðsins kynni sér vandlega hlutverk sitt og starfi af heilindum.
3.
Kynning á stöðu framkvæmda hjá Vestmannaeyjahöfn
Hafnarstjóri fór yfir stöðuna á framkvæmdum hjá Vestmannaeyjahöfn m.a. stöðu mála varðandi samskipti við fóðurframleiðanda, uppbyggingaáforma við Alviðruhamra og stöðuna á styttingu á Hörgaeyrargarði.
Ráðið þakkar yfirferðina og leggur ríka áherslu á að öll verkefni Vestmanneyjahafnar séu unnin af faglegum hætti og með hagsmuni sveitarfélagsins í fyrirrúmi.
4.
Skotbómulyftari
Hafnarstjóri fór yfir þörf hafnarinnar á kaupum á skotbómulyftara þar sem lyftari hafnarinnar er orðinn illa nýtanlegur. Hafnarstjóri hefur rætt sameiginleg kaup við forstöðumann Þjónustumiðstöðvar og sjáum við fram á að geta samnýtt eitt tæki.
Ráðið felur hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna nánari útfærslu á fyrirhuguðum kaupum í samráði við þjónustumiðstöð og leggja endanlega tillögu fram til afgreiðslu á næsta fundi ráðsins.
5.
Fenderar
Töluverð eftirspurn er eftir fenderum og því þörf á að höfnin eignist að minnsta kosti þrjá fendera sem væru að stærðinni 2,5*4. Eftirspurnin er vegna t.d. kapalskipa, skemmtiferðaskipa og NATÓ skipa sem hafa sýnt áhuga á að nýta Vestmannaeyjahöfn.
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir yfirferðina og leggur til að málið verði tekið til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar í haust.
6.
Gjaldskrá Vestmannaeyjahöfn - 2026
Hafnarstjóri leggur til smávægilegra breytinga á gjaldskrá Vestmannaeyjahafnar. Breytingarnar snúa að Létti, breyttri aðstöðu fyrir skútufólk og afbókunum skemmtiferðaskipa.
Ráðið samþykkir nýja gjaldskrá og leggur áherslu á að hafnarstjóri innleiði hana án tafar, með hliðsjón af mikilli umferð um höfnina og nýjum bátakosti.
7.
Kynning á framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins
Sviðsstjóri fór yfir helstu framkvæmdir sem eru í gangi og eru fyrirhugaðar á vegum sveitarfélagsins.
- Íþróttamiðstöð viðbygging
- Hásteinsvöllur flóðlýsing
- Eldheimar klæðning
- Gatnagerð og fráveita nýframkvæmdir
- Gatnagerð og fráveita viðhald
- Gatnalýsing lokaáfangi í útskiptum yfir í LED lampa
- Heimaey innanhúsbreytingar
- Leikskóli Löngulág hönnun
- Íþróttamiðstöð viðbygging
- Hásteinsvöllur flóðlýsing
- Eldheimar klæðning
- Gatnagerð og fráveita nýframkvæmdir
- Gatnagerð og fráveita viðhald
- Gatnalýsing lokaáfangi í útskiptum yfir í LED lampa
- Heimaey innanhúsbreytingar
- Leikskóli Löngulág hönnun
Ráðið þakkar yfirferðina og leggur ríka áherslu á að öll verkefni séu unnin af faglegum hætti og með hagsmuni sveitarfélagsins í fyrirrúmi.
8.
Vigtartorg - Svið
Þann 18. júlí sl. voru opnuð tilboð í svið á Vigtartorgi.
Þrjú tilboð bárust:
SA Smíðar ehf.: 52.858.436
Steini og Olli ehf.: 75.493.000
Eykt ehf.: 76.386.580
Kostnaðaráætlun: 42.237.000
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnir niðurstöður tilboða.
Þrjú tilboð bárust:
SA Smíðar ehf.: 52.858.436
Steini og Olli ehf.: 75.493.000
Eykt ehf.: 76.386.580
Kostnaðaráætlun: 42.237.000
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnir niðurstöður tilboða.
Ráðið samþykkir fyrir sitt leiti að taka tilboði lægstbjóðanda með fyrirvara um samþykki bæjarráðs þar sem verkið er yfir fjárhagsáætlun. Ráðið leggur áherslu á að tryggja fullnaðarframkvæmd þeirra verkefna sem þegar hafa verið hafin, með þeim hætti að sómi sé af verkum sveitarfélagsins.
Erindi vísað til bæjarráðs.
9.
Íþróttamiðstöð viðbygging
Formaður ráðsins leggur til að framkvæmdanefnd verði stofnuð til að fylgja eftir framkvæmdinni og í nefndinni verða Hannes Kristinn Sigurðsson formaður, Sæunn Magnúsdóttir varaformaður, Hákon Helgi Bjarnason forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar og Brynjar Ólafsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Ráðið samþykkir að Hannes Kristinn Sigurðsson formaður, Sæunn Magnúsdóttir varaformaður, Hákon Helgi Bjarnason forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar og Brynjar Ólafsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs verði skipuð í framkvæmdanefnd og gerir kröfu um að nefndarmenn veiti ráði ítarlegar upplýsingar eftir fundi.
10.
Terra - opnunartímar móttökustöðvar
Arngrímur Sverrisson og Daníel Edward Jónsson starfsmenn Terra sátu fundinn undir máli 10 og 11.
Terra óskar eftir að fá að breyta opnunartíma á móttökustöð við Eldfellsveg.
Tillaga 1
- Opnunartími alla virka daga frá 13:00 til 17:00
- Opnunartími um helgar frá 12:00 til 16:00
Tillaga 2
- Hafa lokað á sunnudögum
- Hafa lokað á miðvikudögum
- Opnunartími á laugadögum kl. 11:00 til 16:00
- Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga opið frá 11:00 til 17:00
Terra óskar eftir að fá að breyta opnunartíma á móttökustöð við Eldfellsveg.
Tillaga 1
- Opnunartími alla virka daga frá 13:00 til 17:00
- Opnunartími um helgar frá 12:00 til 16:00
Tillaga 2
- Hafa lokað á sunnudögum
- Hafa lokað á miðvikudögum
- Opnunartími á laugadögum kl. 11:00 til 16:00
- Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga opið frá 11:00 til 17:00
Ráðið hafnar beiðni um styttingu opnunartíma þar sem breytingin myndi leiða til verulegrar röskunar á þjónustu við íbúa og fyrirtæki. Ráðið bendir á að opnunartími sé tilgreindur í samningi sveitarfélagsins og ber því að virða samningsbundin ákvæði.
11.
Terra - breytingar á gjaldskrá
Terra óskar eftir breytingum á gjaldskrá skv. minnisblaði.
Ráðið hafnar erindinu og felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara.