Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja
Ráðið samþykkir og felur hafnarstjóra að undirrita meðfylgjandi samning við Blíðu ehf.
Hafnarstjóra falið að skila endurskoðaðri Hafnarreglugerð Vestmannaeyjahafnar til Innviðaráðuneytisins.
Hafnarstjóri og yfirhafnsögumaður fóru yfir minnisblað sem fulltrúar Vestmannaeyjahafnar tóku saman fyrir ráðið.
Ráðið telur mikilvægt að halda áfram að kynna höfnina og skapa tengsl við viðskiptavini hennar. Ljóst er að mikill áhugi er hjá stærri skipafélögunum sem styður við framkvæmd á fyrirhuguðum stórskipakanti og mun skapa tækifæri fyrir Vestmannaeyjahöfn og samfélagið í heild til framtíðar.
Ráðið þakkar kynninguna og felur hafnarstjóra að undirbúa vígsluathöfn sem fyrirhuguð er þann 14. maí 2026 kl. 13:00.
Drög að dagskrá:
Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar gefa vinnubátnum nafnið Léttir.
Prestur Landakrikju blessar skip og áhöfn. Léttar veitingar á hafnarskrifstofunni.
Báturinn hafður til sýnis frá kl. 13:30 til kl. 15:00 og bæjarbúar hvattir til að mæta.
Herjólfur hefur tilkynnt að hann muni sigla 8 ferðir til Landeyjahafnar á dag í júní, júlí og ágúst.
Það sem af er ári höfum við tekið á móti 60 skipum sem sæta hafnarvernd samanborið við 54 skip á sama tíma í fyrra og 53 árið 2024. Skýrast þessi auknu umsvif af loðnuveiðum sem og auknum umsvifum hjá Laxey.
Sökum þessa miklu umsvifa verða gerðar smávægilegar breytingar á mannahaldi í sumar sem rúmast innan áætlunar.
Ráðið þakkar kynninguna
Sviðsstjóri kynnti drög að hönnun og útliti á sviði við Vigtartorg.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundagerðir
Ráðið þakkar yfirferðina.
Ráðið samþykkir að fresta erindinu fram yfir kosningar og á fyrsta fund hjá nýju ráði.