Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja
346. fundur
11. nóvember 2026
kl.
14:59
-
15:57
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson
formaður
Jóhann Ingi Óskarsson
varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson
aðalmaður
Garðar Benedikt Sigurjónsson
aðalmaður
Guðbjörg Sól Sindradóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjahafnar - 2027
Fyrir lá fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Vestmannaeyja 2027 eins og hún var afgreidd við fyrri umræðu í bæjarstjórn. Rekstrartekjur eru áætlaðar 725 milljónir króna og rekstrarniðurstaða eftir fjármagnsliði verði jákvæð um tæplega 16 milljónir króna.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
2.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnti málaflokka sem falla undir sviðið eftir fyrri umræðu bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða og vandaða yfirferð á fjárhagsáætlun Vestmanneyjabæjar fyrir árið 2027.
3.
Stórskipakantur, athuganir og rannsóknir
Fyrir liggur skýrsla frá Völuberg vegna rannsókna á Haugasvæðinu.
Ráðið þakkar sviðsstjóra og hafnarstjóra fyrir greinargóða yfirferð á fyrirliggjandi skýrslu. Ráðið bindur miklar vonir við að niðurstöður skýrslunnar skapi grundvöll fyrir áframhaldandi vinnslu grjótnámunnar, enda er aðgengi að hentugu grjóti einn af lykilþáttum í undirbúningi og fyrirhugaðri uppbyggingu stórskipahafnar við Eiðið.
Ráðið mun áfram fylgja málinu markvisst eftir, enda getur framgangur þess haft veruleg áhrif á möguleika til að hrinda þessu mikilvæga uppbyggingarverkefni í framkvæmd.
4.
Hafnarsambandsþing - 2026
Sex fulltrúar frá Vestmannaeyjahöfn sátu þingið sem fór fram í Reykjanesbæ í október. Meðfylgjandi er fundargerð þingsins, skýrsla stjórnar og ályktun fundarins.
Ráðið þakkar hafnarstjóra, sem og þeim starfsmönnum og fulltrúum ráðsins sem sóttu Hafnasambandsþing fyrir hönd Vestmannaeyjahafnar, fyrir þátttöku þeirra og framlag á þinginu.
Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að Vestmannaeyjahöfn eigi öfluga fulltrúa á slíkum vettvangi, enda er þátttaka í sameiginlegri stefnumótun og hagsmunagæslu íslenskra hafna mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun og uppbyggingu hafnarinnar. Ráðið tekur jafnframt undir þær ályktanir sem samþykktar voru á þinginu.
Ráðið fagnar því sérstaklega að næsta Hafnasambandsþing verði haldið í Vestmannaeyjum árið 2028 og telur það ánægjulegt tækifæri til að kynna starfsemi Vestmannaeyjahafnar, uppbyggingu hennar og þau mikilvægu verkefni sem fram undan eru.
5.
Hafnarskrifstofa
Til upplýsinga varðandi hafnarskrifstofu: rif á vesturhúsi, breytingar innanhús og utanhúss.
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir greinargóða yfirferð á fyrirhuguðum framkvæmdum við hafnarskrifstofuna, sem fela í sér breytingar og endurbætur á skrifstofuaðstöðu á efri hæð hússins.
Ljóst er að áætlaður kostnaður við fyrirliggjandi framkvæmdir er umtalsvert meiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Ráðið telur því mikilvægt að fyrir liggi skýr og sundurliðuð kostnaðaráætlun áður en frekari ákvarðanir verða teknar um framgang verkefnisins.
Ráðið felur hafnarstjóra að leggja fram ítarlega kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á næsta fundi ráðsins, þar sem fram komi áætlaður heildarkostnaður og sundurliðun helstu kostnaðarliða.
6.
Miðgerði - Gatnagerð og fráveita
Verkfundagerðir nr. 8 og 9 liggur fyrir til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundargerðir og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða og vandaða yfirferð.
7.
Íþróttamiðstöð viðbygging
Verkfundargerð nr. 5 og 6 liggja fyrir til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi verkfundargerðir og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða og vandaða yfirferð.