Fara í efni

Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja

345. fundur
28. október 2026 kl. 15:00 - 15:58
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson formaður
Jóhann Ingi Óskarsson varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson aðalmaður
Garðar Benedikt Sigurjónsson aðalmaður
Guðbjörg Sól Sindradóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Blátindur VE
Málsnúmer 202607174
Ekki hafa fengist svör frá Minjastofnun varðandi stöðuna á Blátindi þ.e. hvort einhverjir hafi áhuga á að gera bátinn upp.
Frestur sem Minjastofnun Íslands gaf til að leita að áhugasömum aðilum til að taka við Blátind er liðinn. Ráðið felur hafnarstjóra að fylgja málinu eftir við Minjastofnun Íslands og upplýsa ráðið á næsta fundi um möguleg næstu skref.
2.
Dráttarbátur Vestmannaeyjahafnar - 2026
Málsnúmer 202609181
Hafnarstjóri fór yfir stöðuna varðandi leigu/kaup á nýjum dráttarbát.
Ráðið harmar að innviðaráðuneytið hafi ekki séð sér fært að verða við erindi Vestmannaeyjahafnar um að tryggja fjármagn til endurnýjunar dráttarbáts við næstu endurskoðun samgönguáætlunar.

Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs var hafnarstjóra, í samstarfi við bæjarstjóra og bæjarráð, falið að kanna allar mögulegar leiðir til samstarfs og fjármögnunar verkefnisins.

Ráðið fagnar því að þau rök sem Vestmannaeyjahöfn hefur lagt fram um mikilvægi endurnýjunar á dráttarbát verði tekin til skoðunar við endurskoðun samgönguáætlunar eins og fram kemur í svari innviðaráðuneytis.

Ráðið telur ljóst að endurnýjun dráttarbáts Vestmannaeyjahafnar sé ekki eingöngu mikilvægt framfaraskref í uppbyggingu hafnarinnar, heldur einnig nauðsynleg aðgerð til að bæta öryggi vegna aukinnar skipaumferðar við Vestmannaeyjar og suðurströnd landsins. Í því samhengi vísar ráðið sérstaklega til ummæla forstjóra Landhelgisgæslunnar um aukna skipaumferð á svæðinu og mikilvægi þess að efla viðbúnað.

Ráðið leggur ríka áherslu á að verkefnið verði áfram í forgangi, enda er öflugur dráttarbátur lykilþáttur í að tryggja öryggi skipaumferðar, efla viðbragðsgetu á suðurströndinni, bæta hafnarþjónustu og skapa forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu Vestmannaeyjahafnar.

Ráðið mun áfram fylgja málinu eftir af fullum þunga, bæði gagnvart ríkisvaldinu og öðrum mögulegum samstarfsaðilum, með það að markmiði að finna raunhæfa lausn á fjármögnun og tryggja Vestmannaeyjahöfn öflugan og vel búinn dráttarbát.

3.
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Málsnúmer 202610037
Alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2026.

Ráðið felur sviðsstjóra að sjá til þess að minningardagurinn verði auglýstur á heimasíðu sveitarfélagsins með það að markmiði að vekja athygli íbúa á deginum.

4.
Sorpmál - 2026
Málsnúmer 202608073
Sviðsstjóri fór yfir stöðuna á sorpmálum í Eyjum og þá vinnu sem hefur verið síðan á síðasta fundi.
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu. Jafnframt leggur ráðið ríka áherslu á að niðurstaða úr viðræðum við núverandi rekstraraðila liggi fyrir eigi síðar en á næsta fundi ráðsins, enda mikilvægt að tryggja samfellu í þjónustunni og koma í veg fyrir mögulegt þjónusturof.
5.
Íþróttamiðstöð viðbygging
Málsnúmer 202601100
Verkfundargerð nr. 3 og 4 liggur fyrir til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.
6.
Miðgerði - Gatnagerð og fráveita
Málsnúmer 202603164
Verkfundagerðir nr. 7 liggur fyrir til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.
7.
Gatnagerð - Sólhlíð
Málsnúmer 202601130
Verkfundagerð nr. 14 liggur til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.