Fara í efni

Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja

344. fundur
2. október 2026 kl. 11:14 - 11:26
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson formaður
Jóhann Ingi Óskarsson varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson aðalmaður
Guðjón Ragnar Rögnvaldsson varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Vatnsleki á lögn við Skiphella
Málsnúmer 202609199
Gamla sjólögnin sem er við Sprönguna er ónýt og seitlar úr henni vatn. Lögn þessi sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni. Hafnarstjóri leggur til að farið verði í að skipta út lögninni fyrir nýja lögn frá Hlíðarvegi 2 að Dælustöð HS veitna í Friðarhöfn. Myndi nýja lögnin vera lögð í slóðan sem liggur undir Skiphellum og útbúinn þar göngustígur sem nær frá spröngunni að gangstétt norðan megin við Dælustöðina. Kostnaður við framkvæmdina verður 4,5 milljónir
Ráðið samþykkir málið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs þar sem framkvæmdin er ekki á fjárhagsáætlun 2026 og óskar því eftir viðauka. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggt sé afhendingaröryggi á vatni til skipa í Vestmannaeyjahöfn. Ráðið felur jafnframt hafnarstjóra að sækja um nauðsynlegt framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni að því gefnu að bæjarráð samþykki viðaukann.

Jafnframt leggur ráðið ríka áherslu á að framkvæmdin verði unnin í samræmi við þær hugmyndir og áætlanir sem þegar liggja fyrir varðandi Spröngusvæðið. Mikilvægt er því að vandað verði til verka og að frágangur og ásýnd framkvæmdarinnar falli vel að umhverfi svæðisins og fyrirhugaðri framtíðaruppbyggingu þess. Spröngusvæðið hefur mikla sérstöðu og gegnir mikilvægu hlutverki í útivist, upplifun og ásýnd bæjarins, auk þess að vera vinsæll viðkomustaður ferðamanna.