Fara í efni

Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja

343. fundur
30. september 2026 kl. 14:30 - 16:09
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson formaður
Jóhann Ingi Óskarsson varaformaður
Erlingur Guðbjörnsson aðalmaður
Guðjón Ragnar Rögnvaldsson varamaður
Jason Stefánsson varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Blátindur VE
Málsnúmer 202607174
Hafnarstjóri og formaður ráðsins funduðu með fulltrúrum Minjastofnunar eftir að hafa móttekið frá þeim bréf þess efnis að þeir vilji byrja á að auglýsa bátinn áður en hann verður tekin af fornminjaskrá. Minjastofnun óskar eftir að bátnum fylgi það fé sem ráðgert var að færi í förgun á bátnum.
Ráðið samþykkir að þeir fjármunir sem áætlaðir hafa verið til förgunar á Blátindi VE fylgi bátnum, komi fram aðili sem er reiðubúinn að taka við honum og flytja það frá Vestmannaeyjum til uppgerðar.

Ráðið leggur jafnframt áherslu á að niðurstaða liggi fyrir í málinu á næsta fundi ráðsins.

2.
Umhverfismat vegna stórskipakants og grjótleitar
Málsnúmer 202604030
Hafnarstjóri fór yfir stöðuna varðandi rannsókn á Haugasvæðinu og er áætlað að skýrsla Völubergs liggi fyrir um miðjan október.
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir greinargóða yfirferð og bindur miklar vonir við að niðurstöður grjótleitar verði jákvæðar. Um er að ræða mikilvægt skref í áframhaldandi undirbúningi og uppbyggingu stórskipahafnar við Eiðið.
3.
Dráttarbátur Vestmannaeyjahafnar - 2026
Málsnúmer 202609181
Lóðsinn var tekinn í notkun árið 1998 og hefur nýst Vestmannaeyjahöfn vel undanfarna tæpa þrjá áratugi. Nú er þörfin eftir öflugri bát orðin mjög mikil með tilliti til stærri skipa. Að mata starfsmanna Vestmannaeyjahafnar þarf nýt bátur að hafa m.a.
- Betri stjórnhæfni
- Meiri dráttar getu
- Öflugra spil
- 360° útsýni úr brú (öllu stjórnað frá einum punkti)
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir greinargóða yfirferð á þörfinni fyrir öflugan dráttarbát í Vestmannaeyjahöfn. Ljóst er að samhliða fyrirhugaðri styttingu Hörgeyragarðs er öflugri dráttargeta eðlilegt og mikilvægt næsta skref í uppbyggingu hafnarinnar, með það að markmiði að auka öryggi og skapa betri forsendur fyrir öruggum og tíðari skipakomum. Ráðið telur mikilvægt að leitað verði til ríkisvaldsins um aðkomu að fjármögnun slíkrar fjárfestingar, enda myndi öflugur dráttarbátur gegna mikilvægu hlutverki bæði við þjónustu Vestmannaeyjahafnar, veita öryggi sem fyrsta viðbragð við suðurströnd landsins. Auk þjónustu við suðurhluta landsins í stærri verkefnum. Ráðið felur hafnarstjóra að kanna áfram leiðir sem færar eru til að tryggja Vestmannaeyjahöfn öflugum og vel búnum dráttarbát, leita eftir samstarfi og mögulegri fjármögnun ríkisvaldsins í því samhengi. Ráðið óskar eftir aðkomu bæjarráðs og bæjarstjóra að málinu.
4.
Stytting Hörgaeyrargarðs
Málsnúmer 202206134
Leyfi frá HMS og UOS eru komin og er því hægt að byrja dýpkun. Stendur til að Sebastiano dýpki innsiglingarennuna og í framhaldi verður boðin út stytting á garðinum. Hafnarstjóri á eftir að sækja um framkvæmdaleyfi.
Ráðið fagnar því að öll tilskilin leyfi fyrir framkvæmdinni liggi nú fyrir að undanskildu framkvæmdaleyfi. Mikilvægt er að hafa hraðar hendur og tryggja að framkvæmdir við styttingu Hörgeyragarðs geti hafist sem allra fyrst, enda um mikilvæga framkvæmd að ræða sem mun stuðla að auknu öryggi og bættum aðstæðum í Vestmannaeyjahöfn.
5.
Hafnarsambandsþing - 2026
Málsnúmer 202404002
Þing Hafnarsambands Íslands verður haldið í Reykjanesbæ 22.-23. október nk. Vestmannaeyjahöfn hefur rétt á að senda 7 fulltrúa á þingið.
Ráðið samþykkir að sækja þing Hafnasambands Íslands og leggur ríka áherslu á að öll þau sjö sæti sem Vestmannaeyjahöfn á rétt á verði fullnýtt.
6.
Sorpmál - 2026
Málsnúmer 202608073
Sviðsstjóri fór yfir greiningu á leiðum varðandi úrgangsmál í sveitarfélaginu sem honum var falið að gera á fundi nr. 339 í framkvæmda- og hafnarráði.
Ráðið felur sviðsstjóra að eiga samtal við núverandi þjónustuaðila með það að markmiði að tryggja áframhaldandi þjónustu og koma í veg fyrir þjónusturof.
7.
Malbikunarframkvæmdir - 2026
Málsnúmer 202609176
Sviðsstjóri fór yfir malbikunarframkvæmdir sem eru áætlaðar í næsta veðurglugga.

Þær framkvæmdir sem Vestmannaeyjabær og Vestmannaeyjahöfn standa fyrir:
- Sólhlíð
- Bílastæði við listaverkið á nýja hrauninu
- Bílastæði við Kirkjugerði
- Gata við Gjábakkakant
- Strandvegur/FES brekka
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.
8.
Íþróttamiðstöð viðbygging
Málsnúmer 202601100
Óskað eftir að tilnefna nefndarmann í framkvæmdanefnd í stað Sæunnar Magnúsdóttur.

Verkfundargerð nr. 2 liggur fyrir til samþykktar.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu. Jafnframt samþykkir ráðið að Erlingur Guðbjörnsson taki sæti í framkvæmdanefnd í stað Sæunnar Magnúsdóttur.
9.
Leikvellir og skólalóðir - 2026
Málsnúmer 202609175
Sviðsstjóri fór yfir þær framkvæmdir á leikvöllum og skólalóðum sem var farið í sumar.

- Kirkjugerði
- Sóli
- Hamarsskóli
- Barnaskóli
- Hrauntún
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.
10.
Hamarsskóli - viðhaldsframkvæmdir 2026
Málsnúmer 202609174
Sviðsstjóri fór yfir þær viðhaldsframkvæmdir sem ráðist var í á árinu.

- Kerfisloft í kjallara
- Endurnýjun á vatns og hitaveitulögnum
- Kjallari drenaður
- Gler endurnýjað
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða yfirferð á málinu.