Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja
342. fundur
2. september 2026
kl.
15:02
-
15:56
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson
formaður
Erlingur Guðbjörnsson
aðalmaður
Garðar Benedikt Sigurjónsson
aðalmaður
Guðbjörg Sól Sindradóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Minnisvarði Þór
Eftir samtal við formann Björgunarfélags Vestmannaeyja að þá er vilji þeirra að minnisvarðinn um Þór verði færður austan megin Sjóbúð Björgunarfélagsins.
Ráðið er fyrir sitt leyti jákvætt gagnvart færslu minnisvarðans frá Botni Friðarhafnar á svæði til hliðar við sjóbúð Björgunarfélags Vestmannaeyja, að fengnu samþykki lóðarhafa.
Ráðið felur hafnarstjóra að kanna heildarkostnað við framkvæmdina og leggja niðurstöður kostnaðarmats fyrir ráðið á næsta fundi.
2.
Umhverfismat vegna stórskipakants og grjótleitar
Á fundi 334 var hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að fara í verðkönnun fyrir umhverfismat og nýtt aðalskipulag á svæðinu við Eiðið og Haugasvæðið.
Vinna við umhverfismat og nýtt aðalskipulag á svæðinu við Eiðið er mikilvægt skref í áframhaldandi innviðauppbyggingu Vestmannaeyjahafnar. Verkefnið er mikilvægur áfangi í að skapa nauðsynlegar forsendur fyrir frekari uppbyggingu og styrkingu samfélagsins til framtíðar.
25. ágúst síðastliðin voru opnuð tilboð og alls bárust fjögur tilboð frá COWI, EFLU, Verkís og VSÓ.
COWI 14.886.306 kr.
VSÓ 17.850.792 kr.
EFLA 18.807.262 kr.
Verkís 33.129.700 kr.

Ráðið samþykkir að taka lægsta tilboði og felur hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
Ráðið leggur ríka áherslu á hraða og örugga framvindu, enda um mikilvæga framkvæmd að ræða fyrir framtíðaruppbyggingu og starfsemi hafnarinnar.
3.
Gatnagerð - Sólhlíð
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 13 vegna gatnaframkvæmda í Sólhlíð.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir greinargóða yfirferð.
4.
Miðgerði - Gatnagerð og fráveita
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 6 vegna gatnaframkvæmda í Miðgerði.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir greinargóða yfirferð.
5.
Íþróttamiðstöð viðbygging
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 1 vegna viðbyggingar við Íþróttamiðstöðina.
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi fundargerð og þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og formanni ráðsins fyrir greinargóða yfirferð.