Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja
341. fundur
20. ágúst 2026
kl.
14:59
-
16:22
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Hannes Kristinn Sigurðsson
formaður
Erlingur Guðbjörnsson
aðalmaður
Garðar Benedikt Sigurjónsson
aðalmaður
Guðbjörg Sól Sindradóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
varamaður
Starfsmenn
Brynjar Ólafsson
starfsmaður
Dóra Björk Gunnarsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Siðareglur kjörinna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar
Kynntar voru siðareglur kjörinna fulltrúa.
Ráðið þakkar yfirferðina og hyggst leggja sérstaka áherslu á að fulltrúar ráðsins vinni eftir siðareglum.
2.
Gjábakki
Hafnarstjóri fór yfir stöðu framkvæmda á Gjábakka.
Ráðið þakkar Hafnarstjóra fyrir yfirferðina.
3.
Stytting Hörgaeyrargarðs
Hafnarstjóri fór yfir stöðuna:
- Í mars var skilað til umhverfis og orkustofnunar losunarleyfi til að losa efni í hafið innan hafnarsvæðis Vestmannaeyjahafnar.
- 11. maí staðfesti HMS móttöku gagna þar sem verið var að kanna hvort framkvæmdin sé matsskyld.
- Í maí fékk Umhverfis- og orkustofnun uppfærða umsókn þar sem staðfest var að búið væri að senda fyrirspurn á HMS vegna matsskyldu verkefnisins.
- Í byrjun júní fékk HMS uppfært skjal frá hafnarstjóra.
- Í byrjun júlí var skilað inn skýrslu frá Vegagerðinni varðandi vatnshlot að ósk HMS.
- Í júlí fór framkvæmdin inn í skipulagsgátt til að kalla eftir umsögnum varðandi matsskyldu.
- 17. ágúst skilaði hafnarstjói inn umsögn frá Vestmannaeyjahöfn við þeim umsögnum sem bárust.
- 18. ágúst barst frá HMS erindi sem staðfestir að framkvæmdin sé ekki matsskyld.
Nú er beðið eftir losunarleyfi frá Umhverfis- og orkustofnun varðandi styttingu á Hörgaeyrargarði og dýpkun sem mun auka öryggi sjófarenda. Verkið verður boðið út um leið og losunarheimild færst en stefnt er að því að byrjað verði á verkinu í lok september.

Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir góða yfirferð á málinu. Ráðið leggur mikla áherslu á fyrirhugaða styttingu og telur hana mikilvægt skref til að auka afkastagetu og öryggi innan hafnarinnar. Mikilvægt er að undirbúningi verði hraðað og framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Ráðið felur hafnarstjóra að fara í verðkönnun þegar öll tilskilin leyfi liggja fyrir.
4.
Skipalyftan - bilun
Í síðustu viku kom upp bilun í skipalyftunni þegar slaka átti Drangavík VE niður. Kom í ljós að mótor í spili 3A var óvirkur. Settur var undir gamall mótor síðan og hann nýttur til að hægt væri að slaka skipinu niður. Mikil og góð samvinna var á milli Friðriks Björgvinssonar sem sá um að slaka niður skipinu fyrir Vestmannaeyjahöfn og John Berrys sem hefur séð um skipulyftuna síðan hún var endurbyggð árið 2010. Hafnarstjóri leggur til að skipalyftunni verði lokað þar til að búið er að finna viðunandi lausn á mótormálinu.
Ráðið tekur undir með hafnarstjóra að tímabundin lokun upptökumannvirkisins sé óhjákvæmileg við núverandi aðstæður. Samhliða skoðun á mögulegum endurbótum á rafmótor felur ráðið hafnarstjóra og sviðsstjóra að taka rekstur upptökumannvirkisins til heildstæðrar skoðunar og vinna minnisblað um stöðu þess, rekstrarforsendur og mögulegar úrbætur. Minnisblaðið verði lagt fyrir ráðið að þeirri vinnu lokinni.
5.
Olíudreifing ehf. - Nýjar eldsneytislagnir fyrir birgðastöðina á Eiði
Fulltrúar frá Olíudreifingu kom til Vestmannaeyja í vikunni til að fara yfir staðsetningu á nýrri löndunarlögn sem mun ná frá Kleifabryggju út að svæðinu þeirra. Farið var yfir staðsetningu á tengibrunn sem verður á kantinum.
Ráðið þakkar fyrir yfirferðina og leggur, sem fyrr, áherslu á að framkvæmdin verði unnin með hliðsjón af fyrirhuguðum framkvæmdum við stórskipahöfn, þannig að tryggt sé að framkvæmdirnar falli vel saman.
6.
Sorpmál - 2026
Sviðsstjóri óskar eftir að leita leiða til að koma í veg fyrir þjónusturof svo hægt sé að vinna málið vel áfram og meta þá kosti sem liggja fyrir til ákvörðunartöku. Sviðsstjóri fór yfir framvindu á málinu og þá vinnu sem hefur átt sér stað.
Ráðið þakkar sviðstjóra fyrir yfirferðina. Ráðið felur sviðstjóra að framkvæma verðkönnun meðal fyrirtækja sem sinna sambærilegri þjónustu, með það að markmiði að tryggja samfellu í þjónustu að loknu uppsagnarferli við Terra.
Ráðið leggur áherslu á að málið verði unnið áfram af vandvirkni og að framtíðar fyrirkomulag sorpmála sveitarfélagsins verði til fyrirmyndar, með góða þjónustu, hagkvæmni og hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.
7.
Gatnagerð - Sólhlíð
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 11 og 12 vegna gatnaframkvæmda í Sólhlíð.
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferðina.
8.
Miðgerði - Gatnagerð og fráveita
Fyrir liggja verkfundargerðir nr. 4 og 5 vegna gatnaframkvæmda í Miðgerði.
Ráðið þakkar sviðsstjóra fyrir yfirferðina