Fara í efni

Framkvæmda - og hafnarráð Vestmannaeyja

340. fundur
27. júlí 2026 kl. 12:12 - 12:23
í fundarsal Ráðhúss
Nefndarmenn
Erlingur Guðbjörnsson
Garðar Benedikt Sigurjónsson
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Hannes Kristinn Sigurðsson
Sæunn Magnúsdóttir
Starfsmenn
Dóra Björk Gunnarsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Blátindur VE
Málsnúmer 202607174
Á fundi no. 339 í framkvæmda- og hafnarráði var hafnarstjóra falið að upplýsa Minjastofnun um áform ráðsins hvað varðar förgun á Blátindi VE 21. Tölvupóstur barst frá Minjastofnun þar sem þeir upplýstu hafnarstjóra um að Blátindur væri friðaður skv. lögum um minningarminjar nr. 80/2012, 3. gr. Af þeim sökum þarf ráðið að óska eftir því formlega til Minjastofnunar að aflétta friðun af Blátindi ef vilji er til að farga honum.

Tveir aðilar hafa ástandsskoðað bátinn á árunum 2020 og 2021.
Árið 2020 vann Guðmundur Guðlaugsson húsasmiður sem hefur unnið ártugi eikarbátum, gerði ástandsskoðaðun á bátnum þar sem kom fram að hann taldi ekki raunhæft að gera bátinn upp vegna gífurlegs kostnaðar. ,,Nánast allt fyrir ofan dekkbita er ónýtt, Dekk þramir og meginþiljur (tilheyra dekkinu) eru ónýt, stýrishús með gind og innri klæðningu eru sömuleiðis ónýt. Skansklæðning og lunning þyrftu að fara að stórum hluta, vegna lélegs ástands og svo hægt væri að kalfakta (hampþétta) dekk og bita. Það eru megin forsendur að dekk og lúkarskappi séu fullkomlega þétt fyrir leka. Lúkar er það illa farin að gera þarf við hann að stórum hluta. Skipta þarf um styttur í bátnum og nokkrum hluta og gera við annað eins. Öldustokknum þarf að skipta út að stórum hluta, eins gæti þurft að gera við dekkbita. Lestarkarmi má sópa í burtu." Að mati Guðmundar árið 2020 var kostnaður við að koma Blátind í sómasamlegt ástand sem sýningarbát ekki undir 100.000.000.- og að koma honum í haffært ástand myndi kosta helmingi meira.

Árið 2021 ástandsskoðaði Ágúst Österby bátinn. ,,Allt í allt sé ég bát með mjög heillegan skrokk. Dekkið og flest ofan þilja er þó mjög illa farið. En það er það sem er auðveldast að laga. Aðalatriðin eru í lagi. Ef vél væri sett í bátinn núna og stýribúnaður lagaður, þá væri hægt að sigla á honum hvert sem væri. Einu merkin (eftir að báturinn sökk) eru smávægilegur brestur í byrðing, uþb 10. umfari á bakborðssíðu, og svo lúkarinn." Kostnaður við að koma í siglingahæft ástand 90.000.000.-
Ráðið þakkar hafnarstjóra fyrir góðar samantektir. Álit sérfræðinga eru mikilvæg til að taka upplýsta ákvörðun um framtíð Blátinds VE 21. Ráðið samþykkir að óska eftir því við Minjastofnun að friðun á Blátindi VE 21 verði aflétt, til þess að heimilt verði að farga bátnum í samræmi við gildandi lög og reglur. Ráðið vísar til þess að kostnaður við uppgerð Blátinds sé slíkur að það sé ekki forsvaranlegt að hafnarsjóður Vestmannaeyja ráðist í verkið. Til samanburðar má benda á áætlaður kostnaður við verkefnið nemur svipaðri fjárhæð og var nýverið varið til kaupa á litlum dráttarbát, sem mun nýtast höfninni í þeim verkefnum sem hún sinnir. Hafnarstjóra, varaformanni og formanni Framkvæmda- og hafnarráðs er falið að senda erindi til Minjastofnunar og óska þess að friðun á Blátindi verði aflétt.