Fræðsluráð Vestmannaeyja
412. fundur
12. nóvember 2026
kl.
12:00
-
13:43
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir
formaður
Þórdís Jóna Guðmundsdóttir
varaformaður
Óskar Jósúason
aðalmaður
Rannveig Ísfjörð
aðalmaður
Sonja Andrésdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir
starfsmaður
Jón Pétursson
starfsmaður
Dagskrá
1.
Starfsáætlanir leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar.
Eyja Bryngeirsdóttir, leikskólastjóri Kirkjugerðis kynnti og lagði fram starfsáætlun leikskólans fyrir árið 2026 -2027.
Fræðsluráð
þakkar kynninguna á starfsáætlun skólans fyrir skólaárið 2026-2027 og
staðfestir áætlunina.
2.
Starfshópur um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna
Vegna breytinga á skipan fræðsluráðs er lagt til að Þórdís Jóna Guðmundsdóttir verði skipuð í starfshóp um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna í stað Eyrúnar Haraldsdóttur fyrir hönd E lista.
Fulltrúi Miðflokks í fræðsluráði óskar eftir kostnaðarmati á 36 stunda gjaldfrjálsri leikskólavist.
Fulltrúi Miðflokks í fræðsluráði óskar eftir kostnaðarmati á 36 stunda gjaldfrjálsri leikskólavist.
Fræðsluráð samþykkir
skipun Þórdísar Jónu Guðmundsdóttur í starfshóp um gjaldskrá leikskóla og
vinnudag barna í stað Eyrúnar Haraldsdóttur.
Fræðsluráð felur
sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að vinna kostnaðarmat vegna 36
gjaldfrjálsra leikskólastunda og vísar málinu til frekari umfjöllunar í
starfshópi um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna.
Ráðið óskar eftir því að
formaður starfshópsins boði til fundar við fyrsta tækifæri.
3.
Sumarlokun leikskólanna og sumarleyfi.
Skólaskrifstofa leggur til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2027 verði frá 8. júlí til 10. ágúst. Leikskólar opna klukkan 10:00 þann 11. ágúst. Sumarlokun fyrir árið 2028 verði frá 12. júlí til 14. ágúst. Leikskólar opna klukkan 10:00 þann 15. ágúst.
Fulltrúi M listans leggur fram eftirfarandi tillögu; "Miðflokkurinn leggur til að
sumarlokun leikskólana varir einungis í tvær vikur. Hvert barn skal hins vegar
taka fjórar vikur í samfellt frí og skulu hinar tvær vikurnar tengdar öðru
hvoru megin við lokun leikskóla. Markmiðið er að auka sveigjanleika
fjölskyldna, auðvelda skipulag sumarleyfa á almennum vinnumarkaði og koma betur
til móts við þarfir atvinnulífsins í Vestmannaeyjum. "
Fulltrúar
sjálfstæðisflokksins leggja til að afgreiðslu tillögu Miðflokksins verði
frestað fram á næsta fund ráðsins. Óskað er eftir formlegri umsögn
leikskólastjórnenda, gögnum frá skólaskrifstofu um fyrri reynslu af sama fyrirkomulagi og lagt er til með og kostnaðarmati frá sviðsstjóra, þannig að ráðið geti tekið
upplýsta ákvörðun um málið.
Samþykkt með
fjórum atkvæðum fulltrúa D-lista og E-lista gegn einu atkvæði fulltrúa M-lista.
Fulltrúi
M listans leggur frameftirfarandi bókun: „Fulltrúi Miðflokksins harmar að
fulltrúar sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Eyjalistans hafi hafnað því að taka
tillögu Miðflokksins til afgreiðslu undir þessum dagskrárlið. Tillagan hefði
tryggt börnum áfram fjögurra vikna samfellt sumarleyfi frá leikskóla en
jafnframt veitt foreldrum aukinn sveigjanleika til að samræma sumarleyfi barna
sinna við orlof og atvinnuþátttöku fjölskyldunnar. Núverandi fyrirkomulag getur
reynst sérstaklega íþyngjandi fyrir foreldra á almennum vinnumarkaði, þar
semmöguleikar til sveigjanlegrar orlofstöku eru oft takmarkaðir. Aukinn
sveigjanleiki hefði ekki aðeins komið til móts við þarfir fjölskyldna heldur
einnig auðveldað atvinnurekendum aðskipuleggja sumarleyfi starfsfólks og
tryggja samfellda starfsemi yfir sumartímann. Miðflokkurinn leggur áherslu á að
leikskólaþjónusta sveitarfélagsins eigi að taka mið af þörfum barna og fjölskyldna,
styðja við atvinnuþátttöku foreldra og efla valfrelsi þeirra, fremur en að
setja fjölskyldum óþarfa skorður við að samræma atvinnu og fjölskyldulíf.
Vestmannaeyjabær á að vera fjölskylduvænt sveitarfélag í verki, ekki aðeins í
orði. Það felur í sér að grunnþjónusta sveitarfélagsins sé skipulögð með
hagsmuni barna að leiðarljósi, án þess að horft sé fram hjá ólíkum aðstæðum
foreldra og þörfum atvinnulífsins. Miðflokkurinn telur miður að ekki hafi
gefist tækifæri til að ræða og taka afstöðu til tillögu sem hefði getað stuðlað
að sanngjarnra og sveigjanlegra fyrirkomulagi, börnum, fjölskyldum og
atvinnulífi í Vestmannaeyjum til hagsbóta.“ (sign. Sonja Andrésdóttir)
Gerð var 10 mínútna fundarhlé.
Bókun D listans: "Bæði tillaga skólaskrifstofu og
tillaga Miðflokksins lágu fyrir fundinum og voru til umræðu. Því er ekki rétt
að ekki hafi gefist tækifæri til að ræða málið. Afgreiðslu tillögu Miðflokksins
er frestað til næsta fundar ráðsins svo afla megi formlegrar umsagnar
leikskólastjórnenda, upplýsinga um fyrri reynslu af sambærilegu fyrirkomulagi
og kostnaðarmats. Breytingar á sumarlokun leikskóla þurfa að taka mið af
rekstrarlegum áhrifum, mönnun, vinnudegi barna og gæðum leikskólastarfsins. Við
skipulag þjónustunnar þarf að gæta jafnvægis milli þarfa barna, uppbyggingu
starfseminnar og ábyrgs rekstrar. Því telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
nauðsynlegt að fyrir liggi faglegt og fjárhagslegt mat áður en ákvörðun er
tekin um breytt fyrirkomulag. Ef umbeðin gögn sýna fram á að tilefni sé til endurskoðunar
geta samþykktar dagsetningar sumarlokunar eftir árið 2027 tekið breytingum."
(sign Aníta Jóhannsdóttir, Rannveig Ísfjörð og Óskar Jósúason)
Tillaga
skólaskrifstofu um sumarlokun leikskóla fyrir árin 2027 og 2028 er samþykkt með
fjórum atkvæðum fulltrúa D-lista og E-lista gegn einu atkvæði fulltrúa M-lista.
Bókun E listans:
"Undirrituð er tilbúin til að samþykkja sumarlokun 2027 en finnst
mikilvægt er að skoðað verði hvort hægt sé að auka fjölbreytni í sumarlokun
leikskóla til að mæta fjölbreyttum hópi foreldra leikskólabarna fyrir árið
2028." (sign. Þórdís Jóna Guðmundsdóttir)
Bókun D listans:
"Ljóst er að ekki verður unnt að gera breytingar á fyrirkomulagi
sumarlokunar leikskóla fyrir árið 2027 þar sem undirbúningur og skipulag vegna
þess árs er þegar hafið. Verði talin þörf á breytingum eða endurskoðun
fyrirkomulagsins getur Fræðsluráð þó ávallt tekið ákvörðun um sumarlokun ársins
2028 til nýrrar umfjöllunar. Samþykkt til næstu tveggja ára er því fyrst og
fremst liður í að auka fyrirsjáanleika í starfseminni." (sign Aníta
Jóhannsdóttir, Rannveig Ísfjörð og Óskar Jósúason)
4.
Frístund
Frh. af máli 2 fræðsluráðsfundar nr. 411. Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti drög að nýrri gjaldskrá og uppfærðar reglur frístundar. Þær breytingar sem lagðar eru til varðandi gjaldskrá frístundar er að í stað mánaðargjalds verði boðið upp á að greiða fyrir daga þar sem stiglækkun er á gjaldi því fleiri daga sem barn nýtir. Einnig er hægt að kaupa ákveðið fylgdargjald vegna íþróttaæfinga fyrir börn sem nýta frístund takmarkað en þurfa fylgd á æfingar. Áfram verður svo boðið upp á heildagsvistun á skráningardögum og bætist þá gjald við daginn sem og kostnaður vegna matar. Hækkun á gjaldi er innan 2,5% viðmiða sem bæjarstjórn hefur ákveðið. Sviðsstjóri og forstöðumaður frístundamiðstöðvar leggja einnig fram til kynningar drög að endurskoðuðum reglum fyrir frístund.
Ráðið
samþykkir fyrir sitt leiti tillögur að breyttri gjaldskrá og mun taka afstöðu
til breyttra reglna á næsta fundi ráðsins.
5.
Framtíðarsýn og áherslur í menntamálum.
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála kynnti stöðuna við mótun nýrrar framtíðarsýnar. Rafrænni kosningu meðal kennara í leik- og grunnskólum um áherslur framtíðarsýnarinnar lauk á föstudaginn var og vinnur starfshópurinn nú úr þeim niðurstöðum. Næstu skref er að umræðuhópar innan leik- og grunnskólanna fari af stað á næstu dögum og verður niðurstöðum þeirrar vinnu skilað til starfshópsins sem fyrst. Af þeim sökum verður ekki unnt að fylgja upphaflegri tímaáætlun ráðsins. Áætlað er að fyrstu drög að nýrri framtíðarsýn verði lögð fram á næsta fundi fræðsluráðs.
Ráðið
lýsir ánægju með þá vinnu sem þegar hefur farið fram og telur eðlilegt að
tímaáætlun verði aðlöguð að því markmiði að tryggja vandaða niðurstöðu. Ráðið
óskar eftir að fyrstu drög að framtíðarsýn verði lögð fram til umræðu á næsta
fundi.
6.
Skólaskrifstofa Vestmannaeyja
Frh. af máli nr. 3 á fræðsluráðsfundar 411. Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála leggur fram aðgerðaráætlun til að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur sem bíða eftir greiningu.
Í aðgerðaráætlunni leggur skólaskrifstofan til að óskað verði eftir viðbótar fjármagni í fjárhagsáætlun 2027 til að bæta tímabundið við stöðugildi sálfræðings. Ef ekki takist að ráða í stöðu sálfræðings verði heimild til að nýta fjármagnið í aðkeypta þjónustu. Er þetta viðbótarfjármagn hugsað til eins árs til að draga úr uppsöfnuðum biðlista eftir greiningu. Samhliða verði lögð vinna í heilstætt endurmat á verklagi, forgangsröðun og hvernig þörfum barna er mætt án þess að formleg greining liggi fyrir. Mikil uppsöfnun mála á biðlista eftir greiningum barna í leik- og grunnskóla kallar á heildstæða endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi og verkferlum skóla- og stoðþjónustu. Mikilvægt er að greina ástæður fjölgunar greiningarbeiðna, endurmeta viðmið fyrir tilvísanir, forgangsröðun og möguleika á markvissri yfirferð biðlista.
Jafnframt þarf að skoða hvort hægt sé að mæta þörfum fleiri barna enn meira með snemmbærum stuðningsúrræðum, ráðgjöf og aðlögun námsumhverfis án þess að formleg greining sé forsenda þjónustu.
Markmiðið er að tryggja að börn fái viðeigandi stuðning á réttum tíma, nýta sérfræðiþekkingu með markvissari hætti og draga úr óþarfa uppsöfnun mála á biðlistum.
Í aðgerðaráætlunni leggur skólaskrifstofan til að óskað verði eftir viðbótar fjármagni í fjárhagsáætlun 2027 til að bæta tímabundið við stöðugildi sálfræðings. Ef ekki takist að ráða í stöðu sálfræðings verði heimild til að nýta fjármagnið í aðkeypta þjónustu. Er þetta viðbótarfjármagn hugsað til eins árs til að draga úr uppsöfnuðum biðlista eftir greiningu. Samhliða verði lögð vinna í heilstætt endurmat á verklagi, forgangsröðun og hvernig þörfum barna er mætt án þess að formleg greining liggi fyrir. Mikil uppsöfnun mála á biðlista eftir greiningum barna í leik- og grunnskóla kallar á heildstæða endurskoðun á núverandi fyrirkomulagi og verkferlum skóla- og stoðþjónustu. Mikilvægt er að greina ástæður fjölgunar greiningarbeiðna, endurmeta viðmið fyrir tilvísanir, forgangsröðun og möguleika á markvissri yfirferð biðlista.
Jafnframt þarf að skoða hvort hægt sé að mæta þörfum fleiri barna enn meira með snemmbærum stuðningsúrræðum, ráðgjöf og aðlögun námsumhverfis án þess að formleg greining sé forsenda þjónustu.
Markmiðið er að tryggja að börn fái viðeigandi stuðning á réttum tíma, nýta sérfræðiþekkingu með markvissari hætti og draga úr óþarfa uppsöfnun mála á biðlistum.
Ráðið
styður umrædda aðgerðaráætlun og felur sviðsstjóra að fylgja henni eftir til
bæjarráðs við vinnu fjárhagsáætlunar 2027
7.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti málaflokk fræðslumála sem fellur undir fræðsluráð Vestmannaeyja, eftir fyrstu umræðu bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Ráðið þakkar sviðsstjóra kynninguna.