Fara í efni

Fræðsluráð Vestmannaeyja

411. fundur
14. október 2026 kl. 12:00 - 13:30
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir formaður
Eyrún Haraldsdóttir varaformaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Rannveig Ísfjörð aðalmaður
Sonja Andrésdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir starfsmaður
Jón Pétursson starfsmaður
Dagskrá
1.
Framkvæmdir við stofnanir sem heyra undir fræðsluráð Vestmannaeyja
Málsnúmer 202610055
Brynjar Ólafsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn í 1. máli og fór yfir framkvæmdir sumarsins við stofnanir sem heyra undir Fræðsluráð Vestmannaeyja. Kynntar voru endurbætur á lóðum Kirkjugerðis og Sóla, framkvæmdir utanhúss og innanhúss við Hamarsskóla auk endurbóta á útisvæði Barnaskóla. Fram kom að markmið framkvæmdanna væri að bæta aðstöðu barna og starfsfólks, auka öryggi og stuðla að betra náms- og leikumhverfi.
Fræðsluráð lýsir ánægju með þær framkvæmdir sem unnar voru við stofnanir sem heyra undir ráðið á liðnu sumri. Ráðið telur sérstaklega jákvætt að framkvæmdirnar hafi að mestu verið unnar á sumarleyfistíma og því valdið sem minnstu raski á starfsemi stofnananna.
2.
Frístund
Málsnúmer 200706207
Fræðsluráð ræddi samanburð á gjaldskrá Frístundar við sambærileg sveitarfélög og reglur um Frístund. Jafnframt voru ræddar hugmyndir um breytingar á gjaldskrá, þróun starfseminnar og mögulegar breytingar á skipulagi og umsjón Frístundar og Sumarfrístundar innan sveitarfélagsins.
Fræðsluráð tekur jákvætt í þær hugmyndir sem fram hafa komið um breytingar á gjaldskrá Frístundar þar sem foreldrar greiði daggjald í stað núverandi fyrirkomulags. Ráðið felur sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að vinna drög að nýrri gjaldskrá á grundvelli umræðna fundarins og leggja þau fyrir ráðið á næsta fundi.

Jafnframt telur ráðið mikilvægt að núgildandi reglur Frístundar verði endurskoðaðar með hliðsjón af starfsemi, þjónustu og skráningarfyrirkomulagi. Sviðsstjóra er falið í samstarfi við deildarstjóra Frístundar að yfirfara reglurnar og leggja fram drög á næsta fundi ráðsins.

Fræðsluráð telur tækifæri felast í frekari þróun og eflingu Frístundar og Sumarfrístundar. Ráðið tekur jákvætt í að skoða hvort starfsemin eigi betur heima undir fjölskyldu- og tómstundaráði og felur sviðsstjóra að vinna greiningu á kostum, tækifærum og mögulegum áskorunum slíkrar breytingar og leggja fyrir ráðið.

3.
Skólaskrifstofa Vestmannaeyja
Málsnúmer 202404083
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála fór yfir stöðu stoðþjónustu skólaskrifstofu Vestmannaeyja með sérstakri áherslu á biðlista eftir greiningum fyrir börn. Farið var yfir umfang biðlista og hvaða greiningar skortir helst.
Fræðsluráð lýsir yfir áhyggjum af þeim fjölda barna sem bíða eftir greiningu og þeim langa biðtíma sem hefur myndast. Ráðið telur mikilvægt að leitað verði leiða til að bæta stöðuna og felur deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála að útbúa aðgerðaáætlun sem verður lögð fram á næsta fundi ráðsins. Mikilvægt er að stytta biðtíma, forgangsraða úrræðum og leita leiða til að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur sem bíða eftir greiningu.
4.
Framtíðarsýn og áherslur í menntamálum.
Málsnúmer 201411027
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála fór yfir stöðuna á vinnu við endurskoðun framtíðarsýnar Vestmannaeyjabæjar í menntamálum. Farið var yfir framgang verkefnisins og helstu áherslur sem lagðar hafa verið til grundvallar í vinnunni. Jafnframt var rætt um næstu skref og fyrirkomulag áframhaldandi vinnu.
Fræðsluráð lýsir ánægju með þann undirbúning sem þegar hefur farið fram við endurskoðun framtíðarsýnar Vestmannaeyjabæjar í menntamálum. Ráðið leggur áherslu á að byggt verði áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið í skólastarfi sveitarfélagsins og að framtíðarsýnin styðji við áframhaldandi þróun og framfarir í menntamálum.

Fræðsluráð hvetur starfshópinn til áframhaldandi vinnu í samræmi við samþykkta verkáætlun og felur honum að leggja fram fyrstu drög að endurskoðaðri framtíðarsýn á næsta fundi ráðsins.