Fara í efni

Fræðsluráð Vestmannaeyja

410. fundur
12. október 2026 kl. 10:00 - 11:35
3. hæð GRV-Barnaskóli, fundarherbergi.
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir formaður
Eyrún Haraldsdóttir varaformaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Rannveig Ísfjörð aðalmaður
Sonja Andrésdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir starfsmaður
Dagskrá
1.
Fræðsluráð heimsækir GRV-Barnaskóla
Málsnúmer 202610046
Fræðsluráð heimsótti GRV-Barnaskóla mánudaginn 12. október kl. 10:00. Einar Gunnarsson skólastjóri tók á móti ráðinu og kynnti starfsemi GRV-Barnaskóla, helstu verkefni, áherslur í skólastarfinu og aðstöðu skólans.
Í heimsókninni gafst ráðinu tækifæri til að kynna sér nánar starfsemi skólans og ræða við skólastjóra um helstu verkefni, áskoranir og tækifæri í skólastarfinu. Heimsóknin var liður í því að efla þekkingu ráðsins á þeirri þjónustu og starfsemi sem fellur undir málefnasvið þess.
Fræðsluráð þakkar Einari Gunnarssyni skólastjóra og starfsfólki GRV-Barnaskóla kærlega fyrir góðar móttökur og góða kynningu á starfsemi skólans. Heimsóknin veitti ráðinu gagnlega innsýn í skólastarfið og þau verkefni sem unnið er að innan skólans.