Fræðsluráð Vestmannaeyja
409. fundur
23. september 2026
kl.
14:05
-
15:07
Hamarsskóli
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir
formaður
Eyrún Haraldsdóttir
varaformaður
Óskar Jósúason
aðalmaður
Rannveig Ísfjörð
aðalmaður
Sonja Andrésdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Fræðsluráð heimsækir frístund
Fræðsluráð heimsótti Frístund miðvikudaginn 23. september kl 14:00. Sigurleif Kristmannsdóttir, deildarstjóri Frístundar tók á móti ráðinu og kynnti starfsemi Frístundar, helstu verkefni og aðstöðu.
Í heimsókninni gafst ráðinu tækifæri til að kynna sér nánar starfsemina og ræða við starfsfólk um þjónustu, verkefni og hlutverk Frístundar. Heimsóknin var liður í því að efla þekkingu ráðsins á þeirri þjónustu og starfsemi sem fellur undir málefnasvið þess.
Jafnframt fóru fram umræður um gjaldskrá Frístundar og mögulegar breytingar sem gætu eflt skráningu og nýtingu starfseminnar.

Fræðsluráð þakkar deildarstjóra og starfsfólki Frístundar kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega kynningu á starfseminni. Heimsóknin veitti ráðinu gagnlega innsýn í starf Frístundar.
Í umræðum í heimsókninni komu fram sjónarmið um gjaldskrá Frístundar og möguleg áhrif hennar á skráningu og nýtingu þjónustunnar. Fræðsluráð felur því sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og deildarstjóra Frístundar að taka saman samanburð á gjaldskrám sambærilegra sveitarfélaga og útbúa drög að endurskoðaðri gjaldskrá Frístundar til umfjöllunar á næsta fundi ráðsins. Jafnframt er óskað eftir kynningu á gildandi reglum Frístundar og mati á því hvort þörf sé á endurskoðun þeirra með hliðsjón af starfsemi, þjónustu og fyrirkomulagi skráninga.