Fara í efni

Fræðsluráð Vestmannaeyja

408. fundur
3. september 2026 kl. 12:00 - 12:48
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir formaður
Eyrún Haraldsdóttir varaformaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Rannveig Ísfjörð aðalmaður
Sonja Andrésdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir starfsmaður
Jón Pétursson starfsmaður
Dagskrá
1.
Leikskóla og daggæslumál.
Málsnúmer 201304072
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs um áætlaða þörf á leikskólaplássum í Vestmannaeyjum næstu árin. Fram kemur að núverandi húsnæði leikskólanna Kirkjugerðis og Sóla ætti að anna eftirspurn til ársins 2030 miðað við fyrirliggjandi íbúaspár.
Fræðsluráð þakkar fyrir minnisblaðið og felur sviðsstjóra að fylgjast áfram með þróun mála og upplýsa ráðið eftir þörfum. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að hefja undirbúning og vinnu við uppbyggingu nýs leikskóla svo sveitarfélagið geti áfram haft það að markmiði að börn fái leikskólapláss sem fyrst eftir 12 mánaða aldur.
2.
Gjaldskrá leikskóla
Málsnúmer 202309120
Starfshópurinn fundaði 2. september til að fara yfir reynslu af þeim breytingum sem gerðar voru á gjaldskrá leikskóla og tóku gildi um síðustu áramót. Farið var yfir hvernig breytingarnar hafa reynst í framkvæmd, ábendingar sem borist hafa og þau atriði sem hafa gengið vel, sem og tækifæri til frekari úrbóta.
Formaður fræðsluráðs lagði fram tillögu um að veittur yrði systkinaafsláttur af gjaldi vegna skráningardaga leikskóla. Markmið tillögunnar er að draga úr kostnaði fjölskyldna með fleiri en eitt barn í leikskóla og stuðla að auknu jafnræði og samræmi í gjaldtöku. Samkvæmt gildandi gjaldskrá er eitt gjald fyrir skráningardaga.

Eftir fund stýrihópsins leggur hann eftirfarandi til við fræðsluráð:
• Að skólaskrifstofa geri og sendi könnun til foreldra barna í leikskólum og grunnskólum sveitarfélagsins um reynslu þeirra af fyrirkomulagi vetrarleyfis.
• Að komið verði á fót „Spurt og svarað“ síðu á heimasíðu sveitarfélagsins er varðar nýju gjaldskrá leikskóla, til að skýra fyrirkomulagið betur og draga úr misskilningi sem gætti í upphafi innleiðingarinnar.
• Leikskólastýru Sóla og aðstoðaleikskólastjóra Víkurinnar verði bætt við stýrihópinn svo allir leikskólastjórar eigi fulltrúa í stýrihópnum.
• Að tillaga formanns um systkinaafslátt verði samþykkt.
Stýrihópurinn mun funda aftur sem fyrst til að fara nánar yfir hvernig breytingarnar hafa reynst í framkvæmd, ábendingar sem borist hafa og þau atriði sem hafa gengið vel, sem og tækifæri til frekari úrbóta.

Fræðsluráð samþykkir að systkinaafsláttur taki framvegis einnig til gjaldtöku vegna skráningardaga leikskólabarna, með það að markmiði að koma til móts við fjölskyldur með fleiri en eitt barn í leikskóla.

Fræðsluráð tekur jafnframt jákvætt í aðrar tillögur stýrihópsins og felur deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála að fylgja þeim eftir.

3.
Framtíðarsýn og áherslur í menntamálum.
Málsnúmer 201411027
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála upplýsti ráðið um vinnu við nýja framtíðarsýn og áherslu í menntamálum sé í samræmi við fyrirliggjandi verkáætlun. Boðað hefur verið til fyrsta fundar starfshópsins og undirbúningur gagnaöflunar er hafinn.

Fræðsluráð þakkar fyrir upplýsingarnar og fagnar því að vinna við mótun framtíðarsýnar og áherslna í menntamálum sé hafin samkvæmt áætlun. Ráðið hlakkar til að fylgjast með framvindu verkefnisins.