Fræðsluráð Vestmannaeyja
Fræðsluráð þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju með niðurstöðurnar. Ráðið telur þær staðfesta mikilvægi reglubundinna skimana, snemmtækrar íhlutunar og markvissrar eftirfylgni til að styðja við námsframvindu barna.
Fræðsluráð telur mikilvægt að byggt verði á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður í skólastarfi sveitarfélagsins. Skólar Vestmannaeyjabæjar standa sterkt og veita nemendum góða menntun og þjónustu. Mikilvægt er að endurskoðuð framtíðarsýn styðji við áframhaldandi þróun skólastarfs og taki mið af þeim áherslum sem lagðar hafa verið í verkefninu Kveikjum neistann: læsi og lesskilning, stærðfræði, náttúru- og umhverfisfræði, hreyfingu og einbeitingu, sem og jákvætt hugarfar.
Fræðsluráð samþykkir að skipa starfshóp um endurskoðun framtíðarsýnar í menntamálum. Í hópnum sitji:
- Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála, formaður starfshóps.
- Kennsluráðgjafi grunnskóla, ritari starfshóps.
- Sérkennsluráðgjafi leikskóla.
- Skólastjórar Grunnskóla Vestmannaeyja
- Leikskólastjórar Kirkjugerðis og Sóla.
- Fulltrúi leikskólakennara.
- Fulltrúi kennara af yngsta stigi Grunnskóla Vestmannaeyja (Hamarskóla).
- Fulltrúi kennara af mið- eða unglingastigi Grunnskóla Vestmannaeyja (Barnaskóla).
- Aðstoðarskólastjóri 5 ára deildar Grunnskóla Vestmannaeyja.
- Námsráðgjafi.
- Fulltrúi foreldrafélags Grunnskóla Vestmannaeyja.
Fræðsluráð leggur áherslu á að vinna við endurskoðun framtíðarsýnar í menntamálum verði markviss og gagnsæ. Starfshópurinn skal vinna samkvæmt eftirfarandi verkáætlun:
- September 2026: Vinna starfshóps hefst og gagnaöflun fer fram. Farið verður yfir núverandi framtíðarsýn, stöðu skólastarfs og áherslur til framtíðar.
- Október 2026: Fyrstu drög að endurskoðaðri framtíðarsýn lögð fram og kynnt fræðsluráði.
- Nóvember 2026: Önnur drög unnin með hliðsjón af ábendingum og umsögnum hagsmunaaðila, þar á meðal skólaráðs, foreldraráða leikskólanna, fulltrúa nemenda og ungmennaráðs.
- Desember 2026: Lokafrágangur framtíðarsýnar, undirritun og afgreiðsla starfshóps. Tillaga lögð fyrir fræðsluráð til umfjöllunar og samþykktar.