Fara í efni

Fræðsluráð Vestmannaeyja

406. fundur
11. júní 2026 kl. 12:00 - 12:00
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Aníta Jóhannsdóttir formaður
Eyrún Haraldsdóttir varaformaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Rannveig Ísfjörð aðalmaður
Emma Karina Jakobsen varamaður
Starfsmenn
Helga Sigrún Þórsdóttir starfsmaður
Jón Pétursson starfsmaður

Dagskrá
1.
Skólalóðin við Sóla
Málsnúmer 202606063
Skólastjóri Sóla kynnti hugmyndir að breytingu og lagfæringum á skólalóð Sóla.

Fræðsluráð tekur vel íþær hugmyndir sem skólastjóri kynnti. Ráðið hefur þegar úthlutaðleikskólanum fjármagni úr þróunarsjóði til uppsetningar á drullueldhúsi ogfalla fyrirhugaðar breytingar vel að þeirri uppbyggingu og þeirri stefnu semunnið er eftir á leikskólanum.

Helga Björk Ólafsdóttir yfirgaf fundinn eftir fyrsta mál.

2.
Kynning á hlutverki og verkefnum fræðsluráðs
Málsnúmer 201807065
Sviðstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir helstu hlutverk og verkefni fræðsluráðs.
Ráðið þakkar kynninguna.
3.
GRV. Úthlutun kennslustunda til skólastarfs
Málsnúmer 200805104
Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála lagði til staðfestingar áætlun um úthlutun kennslustunda og stöðugilda annarra starfsmanna við GRV skólaárið 2026-2027. Úthlutunin er sett fram í heildarskjali sem skiptist síðan á milli GRV-Hamarsskóla og GRV-Barnaskóla eftir fjölda barna og samkomulagi skólastjóra beggja skóla.
Nemendafjöldi er áætlaður 540 í 29 bekkjardeildum. Nemendafjöldi GRV-Hamarsskóla er áætlaður 187 nemendur og GRV-Barnaskóli 353 nemendur.
Almennar kennslustundir verða 1069,9 kest.
Sérkennsla 135,1 kest.
Nýbúakennsla 30,0 kest.
Viðbótarúthlutun vegna teymiskennslu/KN 26,0 kest.
Viðbótarúthlutun vegna nemenda með sérþarfir 36,0 kest.
Óráðstafað: 22
Heildarfjöldi kennslustunda er því 1311,5.
Gert er ráð fyrir 58,2 klst í gæslu og 40 klst í bókasafnsstörf.
Heildarstöðugildi annarra en grunnskólakennara, þ.e. stjórnenda, þroskaþjálfa, stuðningsfulltrúa, skólaliða, UT fulltrúa, ritara, húsvarða og námsráðgjafa er 43,9 stg.
Ráðið samþykkir umrædda úthlutun.
4.
Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Vestmannaeyja
Málsnúmer 201911003
Alls bárust 9 tilnefningar til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs í ár. Fræðsluráð kom saman á vinnufundi 16. apríl sl. til að fara yfir tilnefningarnar. Verðlaunin voru síðan veitt við hátíðlega athöfn þann 7. maí sl. Ráðið komst að sameiginlegu niðurstöðu um að veita eftirtöldum aðilum Hvatningarverlaunin í ár:

Jarl Sigurgeirsson - Söngur á sal.
Jarl hefur um árabil sinnt söng á sal af miklum metnaði og gert hann að föstum og mikilvægum þætti í skólastarfinu. Með söngstundunum skapast vettvangur þar sem nemendur koma saman, njóta samveru og taka þátt í sameiginlegri upplifun sem eflir bæði gleði og samveru. Framlag Jarls hefur haft jákvæð áhrif á skólamenningu og styrkt samfélagsandann innan skólans.

Erla María Sigurgeirsdóttir og Gréta Guðný Snorradóttir - kennsla elsta árgangs í Kirkjugerði.
Erla María og Gréta Guðný hafa á skömmum tíma reynst afar verðmæt viðbót við starfsfólk Kirkjugerðis. Þær komu til starfa með góða reynslu úr leikskólaumhverfinu og hafa frá upphafi unnið af fagmennsku, krafti og jákvæðu viðmóti. Framlag þeirra hefur verið bæði sýnilegt og mikilvægt og með störfum sínum hafa þær stutt vel við starfsemi leikskólans og lagt sitt af mörkum til að efla gott og uppbyggilegt skólastarf.

Linda Óskarsdóttir, sérkennslustjóri á Víkinni
Linda er fyrirmyndarkennari sem mætir börnum af hlýju, fagmennsku og ríkri ábyrgðarkennd. Hún hefur einstaka hæfni til að greina þarfir barna og skapa öruggt og styðjandi umhverfi þar sem þau geta dafnað og notið sín. Þá er hún lausnamiðuð, úrræðagóð og sterkur leiðtogi sem styður samstarfsfólk sitt vel og leggur sig fram um að finna árangursríkar leiðir fyrir hvert barn. Framlag Lindu hefur verið bæði mikilvægt og eftirtektarvert í skólasamfélaginu.
Ráðið óskar verðlaunahöfum til hamingju ogþakkar þeim sem sendu inn tilnefningar. Verðlaunahafarnir eiga það sameiginlegtað hafa með metnaði, fagmennsku og jákvæðu viðmóti lagt sitt af mörkum til aðefla skólasamfélagið og skapa gott umhverfi til náms og þroska.
5.
Þróunarsjóður leik-, grunn- og tónlistarskóla
Málsnúmer 201910096
Samningar vegna styrkja úr Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla voru undirritaðir þann 7. maí í Einarsstofu. Markmiðið með Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í skólunum.
Þrjú verkefni hlutu styrk úr Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla þetta árið og eru þau eftirfarandi:
• Drullueldhús á Sóla - Valgerður, Guðrún Lilja og Hildur Dögg
• Einfaldar tilraunir - Bryndís Bogadóttir
• Bætt útinámsaðstaða - Gréta Guðný Snorradóttir og Erla María Sigurgeirsdóttir
Fræðsluráð óskarstyrkþegum innilega til hamingju með veitta styrki og hlakkar til að fylgjastmeð framvindu og árangri þessara spennandi verkefna.
6.
Starfshópur um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna
Málsnúmer 202309120
Vegna breytinga á skipan fræðsluráðs eftir sveitarstjórnarkosningar er lagt til að
pólitískir fulltrúar í starfshópi um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna verði
endurskoðaðir. Eftirfarandi tillaga er lögð fram:

"Lagt til að pólitískir fulltrúar í starfshópi um gjaldskrá leikskóla og vinnudag barna
verði endurskoðaðir og að eftirtaldir fulltrúar taki sæti í starfshópnum af hálfu
fræðsluráðs:

• Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs fyrir hönd D lista
• Eyrún Haraldsdóttir, varaformaður fræðsluráðs fyrir hönd E lista
• Sonja Andrésdóttir, aðalmaður Miðflokksins í fræðsluráði fyrir hönd M lista

Aðrir fulltrúar hópsins haldist óbreyttir samkvæmt áður samþykktri skipan, þar á meðal
deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála sem formaður hópsins, framkvæmdastjóri
stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt fulltrúum leikskólastjórnenda, starfsfólks og
foreldra."
Fræðsluráð samþykkir fyrirlagða tillögu og óskareftir því að formaður stýrihóps boði til fundar.
7.
Dagskrá Fræðsluráðs Vestmannaeyjabæjar 2026-2027
Málsnúmer 202606076
Formaður fræðsluráðs lagði fram tillögu að áætlun um dagsetningar fræðsluráðsfunda og heimsóknir í stofnanir frá júlí 2026 til júlí 2027. Almennir fræðsluráðsfundir verða haldnir mánaðarlega og svo munu skólastjórnendur/forstöðumenn stofnana taka á móti ráðinu í fyrirfram ákveðnum vikum þar sem þeir kynna starfsemi stofnunarinnar og sýna ráðsmönnum starfsaðstöðuna. Nánari tímasetningar heimsókna verða ákveðnar í samráði milli formanns fræðsluráðs og stjórnenda viðkomandi stofnana.
Formaður fræðsluráð tók fram að breytingar geti orðið á fundadagskrá með skömmum fyrirvara ef aðstæður kalla á það, hvort sem um er að ræða tilfærslu funda eða boðun aukafunda.
Fræðsluráð samþykkir framlagða fundaráætlun oglýsir ánægju með fyrirhugaðar heimsóknir í þær stofnanir sem heyra undir ráðið.Ráðið hlakkar til að kynna sér starfsemina, verkefnin og það öfluga starf semunnið er innan stofnananna.