Fara í efni

Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja

336. fundur
5. nóvember 2026 kl. 12:00 - 14:00
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson formaður
Guðríður Jónsdóttir aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir aðalmaður
Zindri Freyr Ragnarsson varamaður
Starfsmenn
Silja Rós Guðjónsdóttir
Jón Pétursson starfsmaður
Dagskrá
1.
Jafnréttisáætlun Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 200809002
Eydís Ósk Sigurðardóttir mannauðsstjóri fór yfir þriðja kafla jafnréttisáætlunar Vestmannaeyjabæjar og kynnti vinnu við jafnlaunamat og jafnréttisvinnu sveitarfélagsins.
Ráðið þakkar Eydísi kynninguna.

2.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 202203028
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið býður Vestmannaeyjabæ áframhaldandi samning um samræmda móttöku flóttamanna með óbreyttu sniði út árið 2027.
3.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti málaflokka sem falla undir fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja, eftir fyrstu umræðu bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Ráðið þakkar sviðsstjóra kynninguna.
4.
Heimsóknir Fjölskyldu- og tómstundaráðs í stofnanir sem heyra undir ráðið.
Málsnúmer 202608077
Fjölskyldu- og tómstundaráð heimsótti Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð fimmtudaginn 29. október. Þóranna Halldórsdóttir forstöðumaður Heimaeyjar tók á móti ráðinu. Í heimsókninni gafst ráðinu tækifæri til að spjalla við þjónustuþega og starfsfólk. Átti ráðið gott og uppbyggilegt samtal við viðstadda um starfsemi Heimaeyjar og þá þjónustu sem þar er veitt. Þóranna fór jafnframt yfir starfsemina og kynnti þau fjölbreyttu verkefni sem unnið er að í Heimaey frá degi til dags og fyrirhugaðar framkvæmdir.
Ráðið þakkar Þórönnu, starfsfólki og þjónustuþegum fyrir móttökurnar.
5.
Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Málsnúmer 200704148
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.