Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja
335. fundur
12. október 2026
kl.
12:52
-
14:35
Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg 23
Nefndarmenn
Kjartan Vídó Ólafsson
formaður
Guðríður Jónsdóttir
aðalmaður
Hildur Rún Róbertsdóttir
aðalmaður
Jóhann Ingi Óskarsson
aðalmaður
Þóra Guðný Arnarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jón Pétursson
starfsmaður
Silja Rós Guðjónsdóttir
starfsmaður
Dagskrá
1.
Jafnréttisáætlun Vestmannaeyjabæjar
Yfirferð á jafnréttisáætlun Vestmannaeyjabæjar.
Góð umræða fór
fram um jafnréttismál sem framhaldið verður á næstu fundum ráðsins en ráðið
áætlar að ný jafnréttisáætlun verði tilbúin á vor mánuðum 2027.
2.
Viltu hafa áhrif - fyrri úthlutun 2027
Vestmannaeyjabær auglýsti nýverið eftir umsóknum í styrktarsjóð menningar, lista, íþrótta og tómstunda undir heitinu Viltu hafa áhrif 2027. Um er að ræða styrkumsóknir fyrir fyrri hluta árs 2027 en auglýst verður eftir umsóknum í sjóðinn fyrir seinni hluta árs 2027 í mars.
Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda.
Alls bárust 14 styrkumsóknir, þ.e. 8 menningar- og listatengd verkefni sem bæjarráð tekur afstöðu til og 6 íþrótta- og tómstundatengd verkefni sem fjölskyldu- og tómstundaráð tekur afstöðu til.

Fjölskyldu- og tómstundaráð þakkar fjölbreyttar og
áhugaverðar umsóknir. Ráðið samþykkir styrki vegna fyrri úthlutunar 2027 sem
tilkynntir verða við athöfn í byrjun desember.
3.
Félagsmiðstöðin Strandvegi 50
Sviðsstjóri leggur fram beiðni til ráðsins um að það styðji við ósk um 80 – 100% stöðu milli stjórnanda í Féló.
Ráðið tekur jákvætt í beiðni
sviðsstjóra og vísar henni í fjárhagsáætluninar vinnu sveitarfélagsins.
4.
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Sviðsstjóri leggur fram beiðni til ráðsins um að styðja ósk um 100% stöðu umsjónarmanns/húsvarðar við ÍM.
Ráðið tekur jákvætt í beiðni sviðsstjóra og vísar henni í fjárhagsáætluninar vinnu sveitarfélagsins.
5.
Notendaráð sveitarfélaga
Kynning á erindsbréfum notendaráða sem heyra undir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Ráðið þakkar kynninguna.
6.
Fundargerð trúnaðarmála fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð.
Undir þennan lið falla trúnaðarmál sem lögð eru fyrir ráðið og eru færð í sérstaka trúnaðarmálabók.
Fundargerð trúnaðarmála er færð í sérstaka trúnaðarmálabók. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. viðauka IV við bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjar nr. 991/2020.